Landeigandi hefur dregið að endurnýja lóðarleigusamninga á þeim forsendum að þeir þurfi að innihalda hnit lóðamarka, sem hann segist vera að afla. Liðnir eru 5 mánuðir frá því hann undirritaði skuldbindingu um að endurnýja alla lóðarleigusamninga á þessu ári, en ekkert bólar á umræddum hnitum, hvað þá samningunum sjálfum.
Nú er komið nýtt ferli um skráningu eignamarka með þinglýstri landamerkjayfirlýsingu fyrir hvert hverfi, sem gerir óþarft að tilgreina hnit í lóðarleigusamningum. Ekkert er því til fyrirstöðu að ganga frá lóðarleigusamningunum óháð landamerkjayfirlýsingu. Því hefur formaður skorað á landeiganda að hraða frágangi lóðarleigusamninga í samræmi við skuldbindingu, og boðið fram aðstoð við það, t.d. með því að afla undirritana félagsmanna.
Bréf sent landeiganda 2. október 2014:
Sæll Guðni, þú getur lesið um nýtt ferli fyrir staðfestingu eignamarka á þessari síðu: http://www.skra.is/fasteignaskra/skraning-landeigna/uppmaeling-landamerkja-og-stadfesting-eignamarka/
Eins og ég sagði í símann mæli ég með að þú leitir nánari leiðbeininga um frágang landamerkjayfirlýsingar hjá byggingarfulltrúa Borgarbyggðar. Ég er tilbúinn til að aðstoða við þá vinnu, sérstaklega með því að kynna félagsmönnum málið og afla undirritana þeirra á landamerkjayfirlýsinguna þegar þar að kemur, sem ég tel raunhæft með vorinu.
En hins vegar liggur mun meira á lóðarleigusamningunum. Eins og ég sagði þér í símann þá er óþarfi og í raun tvíverknaður að tilgreina hnit í lóðarleigusamningum, að ekki sé talað um hættuna á villum og ósamræmi. Eðlilegast er að lóðarleigusamningar vísi í gildandi deiliskipulag og þinglýst eignarmörk á hverjum tíma. Því er ekkert því til fyrirstöðu að endurnýja lóðarleigusamningana strax, óháð fyrrgreindri vinnu við landamerkjayfirlýsingu, enda vorum við vorum búnir að ná samkomulagi um texta samninganna þegar í vor.
Það er orðið mjög brýnt að endurnýja lóðarleigusamningana og því skora ég á þig að hraða frágangi þeirra í samræmi við skuldbindingu þína í samkomulagi frá í vor. Sem formaður félagsins býðst ég til að aðstoða við þá vinnu, t.d. með því að afla undirritana félagsmanna á samningana.
Með kveðju, Þorvarður
02 October 2014
23 September 2014
Framkvæmdir í september 2014
Austara vatnsbólið
Lokið er framkvæmdum samkvæmt myndum 2 og 3 í minnisblaði sérfræðings, tyrfa og girða umhverfis inntakstunnur og sá í öll sár.Vestara vatnsbólið
Hluta af því sem lagt var til á myndum 5 og 6 í minnisblaði sérfræðings er lokið. Búið er að hylja báða tankana, grafa rás frá neðri inntakstunnu og taka tvær prufuholur við skriður í nágrenninu. Í ljós kom að neðri inntakstunnan er stífluð og eftir er að hreinsa mold frá henni og setja grús, um leið og hún verður hækkuð. Fylgst verður með prufuholunum í vetur.Stjórnin
Minnisblað sérfræðings um vatnsbólin í Múlabyggð
Minnispunktar og myndir teknar saman af Þórólfi
Hafstað og Hildi Ingvarsdóttur 26.8.2014
Minnismiðinn er settur saman í
framhaldi af vettvangsferð í blíðviðri þann 22. ágúst 2014. Á vatnsveitinni eru um 40 bústaðir. Vatn er
fengið úr tveimur bólum og er dreifikerfið tvískipt. Því hefur lýst í samantekt
stjórnar Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð frá 5. febrúar 2014 „Staða
vatnsveitumála í Múlabyggð“ og er alfarið vísað til hennar um staðhætti,
rennslismælingar sem og almennt ástand veitunnar. Mynd 1 sýnir einungis yfirlit
um afstöðu bóla og bústaða.
Mynd 1. Myndin sýnir þá bústaði eða lóðir, sem upp
koma á vef Þjóðskrár Íslands (skra.is) eftir leitarorðinu“Múlabyggð“. Inn á
myndina er laumað nokkurn veginn staðsetningu á vatnsbólunum.
Austara vatnsbólið
Mynd 2. Myndin á að sýna hvað gera þarf á yfirborði
við austara vatnsbólið.
Mynd 3. Myndin sýnir nánar aðstæður í efra
vatnsbólinu. Helstu viðgerðarþættir eru tilgreindir. Vakin er athygli á að
verulegt vatnsmagn geymist í púkkinu kring um brunnana, sem er í lokuðu
þrýstisambandi við miðlunartankinn þarna ögn neðar. Þegar púkkið tekur ekki lengur
við rennur lækur frá svæðinu; nú ½ l/s.
Mynd 4. Myndin sýnir
yfirlit um svolítið lindarrennsli austan við vatnsbólin (sjá „smá“ á mynd 1).
Vestara vatnsbólið
Mynd 5. Myndin sýnir toppa á tveimur samtengdum miðlunartönkum og yfirlit um
hvað þarf að gera þar.
Mynd 6. Myndin sýnir afstöðu nýja tanksins á vestara svæði til svolítils
lindarrennslis í grenndinni. Þarna er ekki mikils vatns von en ef eitthvað vatn
fengist er þaðan sjálfrennandi að vestari veitunni.
Mynd 7. Myndin sýnir innrennsli í (gamla tankinn) á vesta vatnsbólssvæðinu
föstudaginn 22. ágúst. Þetta er nú ekki merkileg buna og viðbúið að það verður
að fá þarna meira vatn til að tryggt sé að þessi partur veitunnar verði ekki
vatnslaus í þurrkatíð á sumrum eða þá eftir vetrarhörkur. Samt var ekki
þurrkasumar!
Mynd 8. Myndin sýnir
yfirlit um svolítið lindarrennsli vestan við vatnsbólin (sjá „smá“ á mynd 1).
Spottakorn
vestan við vestara vatnsbólssvæðið er lindarvætla (mynd 8), sem er hartnær
sambærileg og sýnd er á mynd 4. Þessari
´ærmigu´ verður ekki veitt sjálfrennandi í tank en stutt er frá henni er einn
af vestustu bústöðunum og þangað mætti veita þessum smáleka inn á kerfið og
dæla inná ef eitthvað er hér stöðugt rennsli.
Mælt er með að
næstu aðgerðir verði gerðar í þrepum og þeim með svofelldum hætti:
1.
Bæta úr gerlamengunarhættu. Þær aðgerðir, sem hér
hefur verið imprað á myndum, beinast að því að bæta vatnsgæðin en minna til að
auka rennslið.
2.
Taka þarf afstöðu til næstu aðgerða til að auka
fáanlegt vatn. Eftir að umbætur hafa verið gerðar til að tryggja heilnæmt vatn
á austara svæði er inni í myndinni að tengja umframrennsli þaðan yfir á
vestari veituna. Þarna var umframvatn að fá þegar skoðað var. Ekki er visst um
sjálfrennsli þarna í milli en það talið líklegt.
3.
Þegar og ef enn meira vatns er þörf í þessari
frístundabyggð er rétt að huga að róttækum breytingum á neysluvatnsöflun.
Hingað til er vatnstaka einungis miðuð við misvel vatnsgefandi smálindir og
sjálfrennsli frá þeim en kröfur bústaðaeigenda eru að geta alltaf gengið að
rennandi gæðaneysluvatni.
4.
Virkja smálindir sitt hvoru megin núverandi vatnsbóla,
leiða vatn að næsta bústað og dæla svolitlu vatni inn á dreifikerfin þegar á
þarf að halda (þá samtengd til að nýta allt vatnið).
5.
Mögulegt er að gera sæmileg vatnsból í brunnum, sem
grafa má í ármöl við bakka Stekksár og Urriðaár en, austan og vestan
Múlabyggðar. Báðar þessar ár eru í raun
aumingjalegir og e.t.v. hverfulir lækir. Samt er við þá grunnvatnsvon en aðeins
úr gröfnum dælubrunnum.
Framtíðarmúsíkin (sbr. lið 5)
Frekari möguleikar liggja fyrst og fremst í eyrum ánna
tveggja; Stekksár og Urriðaár:
Mynd 9. Myndin sýnir afar grófan farveg Stekksár.
Meðfram henni rennur grunnvatn í malareyrinni.
Mynd 10. Urriðaármölin er á köflum alls ekki ekki fínni og fallegri en
Stekksármölin Víða er grunnt niður á fasta klöpp og þess vegna ekki alltaf á
vísan að róa til að fá góðan filter fyrir neysluvatn.
Stjórn félagsins 2014-2015
Þorvarður Kári Ólafsson, formaður (nr.19)
Fanný Miiller Jóhannsdóttir, gjaldkeri (nr.4)
Guðrún Svanborg Hauksdóttir, ritari (nr.36)
Pétur Kristinsson (nr.17,18,20)
Sigmundur Andrésson (nr.24)
Varamenn: Haraldur Jónsson (nr.13) og Hildur Ingvarsdóttir (nr.33,34).
Kosin á aðalfundi félagsins 29. apríl 2014.
Netfang stjórnar er mulabyggd@gmail.com
Fanný Miiller Jóhannsdóttir, gjaldkeri (nr.4)
Guðrún Svanborg Hauksdóttir, ritari (nr.36)
Pétur Kristinsson (nr.17,18,20)
Sigmundur Andrésson (nr.24)
Varamenn: Haraldur Jónsson (nr.13) og Hildur Ingvarsdóttir (nr.33,34).
Kosin á aðalfundi félagsins 29. apríl 2014.
Netfang stjórnar er mulabyggd@gmail.com
22 September 2014
Lög félags bústaðaeigenda í Múlabyggð, eftir breytingar 2014
Samþykktir
fyrir félag bústaðaeigenda í Múlabyggð, Grímstöðum, Borgarbyggð
(eftir breytingar á aðalfundi 2014)
1. gr.
Heiti félags
Félagið heitir Félag bústaðaeigenda í Múlabyggð (skammstafað FBM).Varnarþing þess er hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
2. gr.
Stofnun félags
Félagið var stofnaði í mars 1993 og starfar í samræmi við 17. gr. laga nr. 75/2008, um frístundabyggð og leigu lóðar undir frístundahús Félagssvæðið er Múlabyggð Grímstöðum, 301 Borgarbyggð.Félagið er aðili að Landssambandi sumarhúsaeigenda fyrir hönd félagsmanna sinna.
3. gr.
Félagsmenn
Félagsmenn eru allir þeir sem hafa umráð yfir lóð undir frístundahús á svæðinu. Sama gildir um umráðamenn lóða án húss.Eigendaskipti skal tilkynna stjórn félagsins.
4. gr.
Hlutverk
Hlutverk félagsins er:- Að gæta hagsmuna félagsmanna.
- Að koma fram fyrir þeirra hönd gagvart leigusala.
- Að hlutast til um að umgengni og framkvæmdir á svæðinu valdi sem minnstri röskun.
- Að taka ákvarðanir um verkefni samkvæmt 19.gr. laga um frístundabyggð.
5. gr.
Sameiginlegar veitur
Ákveði aðalfundur að reka sameiginlega aðveitu eða fráveitu skulu gerðar skriflegar samþykktir um þann rekstur og honum haldið aðskildum frá almennum rekstri félagsins.
6. gr.
Skipun stjórnar
Stjórn félagsins skipa fimm (5) menn úr hópi félagsmanna sem kjörnir eru til eins árs í senn á aðalfundi. Formaður skal kjörinn sérstaklega en stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum þannig að einn sé ritari, einn gjaldkeri og aðrir meðstjórnendur. Einnig skal kjósa einn/tvo varamann/menn.Boða skal varamann til stjórnarfundar þegar aðalmaður boðar forföll eða þegar stjórnarmaður óskar þess.
7. gr.
Aðalfundur
Aðalfund skal halda árlega fyrir 1. júní. Fer hann með æðsta vald í málefnum félagsins.Aðalfundur
Aðalfund skal stjórnin boða bréflega til tilgreindra umráðamanna frístundalóða með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Boða má fund með tölvubréfi á það póstfang sem forráðamaður hefur látið stjórninni í té og telst það fullnægjandi svo fremi að ekki komi boð um það til sendanda að tölvubréfið hafi ekki komist til skila. Í fundarboði skal greina fundartíma, fundarstað og dagskrá. Þá skal geta þeirra mála sem ræða á og samantekt á efni þeirra tillagna sem leggja á fyrir fundinn.
Fundurinn telst lögmætur ef minnst þriðjungur félagsmanna sækir fundinn. Ef tilskilinn fjöldi félagsmanna mætir ekki á löglega boðaðan fund skal hann endurtekinn eftir skriflega boðun, með að lágmarki viku fyrirvara, og telst hann þá lögmætur með þeim fjölda félagsmanna, sem mæta seinna skiptið.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
- skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins,
- staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar,
- kosning formanns í samræmi við 6. gr.,
- kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. gr.,
- kosning varamanns/manna í samræmi við 6. gr.,
- kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns,
- framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár,
- ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv. 15. gr.
- mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra,
- önnur mál
8. gr.
Atkvæði
Eitt atkvæði fylgir hverri lóð undir frístundahús og fer tilgreindur umráðamaður með atkvæðisréttin. Afl atkvæða ræður úrslitum mála annarra en þeirra sem fjallað er um í 11. gr. og 19. gr.Atkvæði
9. gr.
Skipting kostnaðar og lögveð
Kostnaður skiptist að jöfnu og ræðst af fjölda lóða undir frístundahús á félagssvæðinu. Umráðamanni lóðar undir frístundahús er skylt að greiða sinn hluta kostnaðar sem hlýst af ákvörðun sem löglega hefur verið tekin.Skipting kostnaðar og lögveð
Greiði félagsmaður ekki hlutdeild sína í sameiginlegum kostnaði og í félagssjóð á gjalddaga eignast félagið lögveð í eign hans á félagssvæðinu, þ.m.t. í leigulóðasamningi, til tryggingar kröfunni. Lögveðið nær einnig til vaxta og innheimtukostnaðar af kröfunni ef því er að skipta. Lögveðinu skal fylgja eftir með lögsókn eða því lýst við nauðungasölu innan árs frá stofnun þess. Viðurkenning eigenda utan réttar nægir ekki til að rjúfa fyrningu.
10. gr.
Fundarseta
Rétt til fundarsetu hafa félagsmenn, makar þeirra og sambúðaraðilar. Sambúðaraðili í skilningi samþykkta þessara er einstaklingur sem er í skráðri sambúð með leigutaka eða umráðamanni lóðar undir frístundahús, í frístundabyggð.Fundarseta
Félagsmaður má veita sérhverjum lögráða manni umboð til að mæta á fundi og greiða atkvæði. Skal umboðsmaður leggja fram á fundinum skriflegt og dagsett umboð. Slíkt umboð má hvenær sem er afturkalla.
Þegar tveir eða fleiri eru eigendur eða leigjendur að lóð skulu þeir tilkynna stjórn félagsins hver skuli teljast umráðmaður hennar samkvæmt samþykktum þessum og fer með atkvæðisrétt, fær fundarboð og kröfu um greiðslu gjalda til félagsins.
11. gr.
Sérstakar ákvarðanir
Ef lögð er fram tillaga á fundi félagsins samkvæmt auglýstri dagskrá í fundarboði um að ráðast í framkvæmdir eða stofna til kostnaðar sem leiða til útgjalda sem eru umfram venjulegan rekstrarkostnað félagsins skal sú tillaga talin samþykkt hljóti hún samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða og minnst þriðjungur félagsmanna sækir fundinn.Sérstakar ákvarðanir
12. gr.
Valdsvið stjórnar
Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda. Stjórnin getur boðað til félagsfunda eins oft og þurfa þykir. Til funda skal boða bréflega með tveggja vikna fyrirvara á sama hátt og aðalfund.Valdsvið stjórnar
Skylt er að boða til félagsfundar ef fjórðungur félagsmanna krefst þess skriflega
Stjórnin getur ekki bundið félagsmenn fjárhagslega.
13. gr.
Gerðarbók
Stjórn félagsins skal halda gerðarbók yfir bæði stjórnarfundi og félagsfundiGerðarbók
Í fundargerðarbók skal skrá yfirlit yfir allt það sem gerðist á félagsfundi og ákvarðanir hans. Fundargerðin skal undirrituð af ritara fundar og fundarstjóra. Fundargerðin er síðan full sönnun þess sem fram hefur farið á fundinum. Sama gildir með fundi stjórnarinnar.
Á fundum félagsins skulu allir félagsaðilar eða umboðsmenn þeirra sem sitja fundinn skrá nafn sitt í fundargerðabók eða fundarsóknarbók og fyrir hvaða lóð eða bústað þeir sitja fundinn.
Fundargerð hvers félagsfundar svo og samþykktan ársreikning og félagaskrá skal senda umráðamanni lóðar innan þriggja (3) vikna frá fundi á tölvupóstfang sem þeir láta stjórn félagsins í té. Aðrir félagsmenn (geta óskað eftir því að) fá gögnin send í pósti.
(Ath. ef félagið heldur úti heimasíðu eða gefur út fréttablað ætti að orða seinni mgr. í samræmi við það.)
14. gr.
Nefndarskipun
Stjórninni er heimilt að skipa nefndir til sérstakra verkefna ef henni þykir ástæða til.
15. gr.
Gjalddagi
Gjalddagi árgjalds skv. 6. gr. skal vera 1 mars og eindagi 15 dögum síðar. Gjalddagi framkvæmdagjalds sem ákvarðað er skv. 11. gr. skal vera tilgreint við samþykkt þess.Gjalddagi
16. gr.
Reikningsárið
Reikningsár félagsins er almanaksárið.Reikningsárið
17. gr.
Slit félagsins
Ef ekki er lengur tilgangur fyrir tilvist félagsins má slíta því með einföldum meirihluta og ákveður fundurinn ráðstöfun eigna sem félagið kann að eiga. Boða skal þá sérstaklega til fundarins vegna tillagna um niðurlagningu félagsins.Slit félagsins
18. gr.
Þinglýsing samþykkta
Stjórn félagsins skal hlutast til um það að samþykktum þessum verði þinglýst á allar fasteignir og lóðasamninga og lóðir sem tilheyra félagssvæðinu svo og breytingum sem kunna að verða gerðar á samþykktum þessum.Þinglýsing samþykkta
19. gr.
Breytingar á samþykktum þessum
Breytingar á samþykktum þessum verða aðeins gerðar á aðalfundi með samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða. Tillaga um breytingu verður einungis tekin til afgreiðslu að hún hafi verið kynnt í aðalfundarboði og minnst þriðjungur félagsmanna sæki fundinn.
Breytingar á samþykktum þessum
Fundargerð aðalfundar í Félagi bústaðaeigenda í Múlabyggð haldinn hinn 29. apríl 2014
Formaður Þorvarður
Kári Ólafsson setti fund kl. 20:20
Formaður var valinn
fundarstjóri og Þorbjörn Jónsson fundarritari.
Lögmæti fundarins
kannað. Bláir atkvæðaseðlar gildir við afgreiðslu á
vatnsveitumáli. Alls 44 lóðarhafar í félaginu, 29 voru mættir
sem þýddi að gera mátti lagabreytingar (þarf >50%) á
fundinum.
Gengið var til
dagskrár:
- Skýrsla stjórnar kynnt af formanni. Sex fundir voru haldnir á starfsárinu. Einnig fundað með fulltrúum landeiganda og lögfræðingi Landsambands sumarhúsaeigenda.
Unnið
að gerð samnings um vatnsveitumál. Ítarleg grein var gerð fyrir
því á fundi í mars 2014. Mæting var þá ekki nægjanleg til
afgreiðslu málsins. Stjórn beitti sér fyrir því að allir með
útrunna lóðarsamninga geti gætu gert nýja samninga.
Skýrsla
stjórnar samþykkt samhljóða.
- Ársreikningur félagsins lagður fram af gjaldkera.
Reynt
var að innheimta gömul árgjöld. Það tókst að innheimta 4
gjöld, annað var afskrifað. Rekstrarkostnaður félagsins jókst
milli ára, aðallega vegna vatnsveitumálsins. Rekstur neikvæður
um kr. 107.000,- á árinu
2013.
Ársreikningur
var borinn upp og samþykktur samhljóða.
- Kosning formanns.
Þorvarður
Kári Ólafsson gaf einn kost á sér, og var hann því
sjálfkjörinn.
- Kosning annarra stjórnarmanna.
Allir
úr fyrri stjórn gáfu kost á sér áfram nema Björn.
Fanný
Jóhannsdóttir var kjörinn nýr gjaldkeri.
Hildur
og Haraldur valin í varastjórn.
- Kosning varamanna.
Endurkjörnir
frá fyrra ári.
- Kosning skoðunarmanna ársreikninga og varamanns.
Endurkjörnir
frá fyrra ári.
- Rekstraráætlun.
Það
má búast við auknum rekstarkostnaði vegna vega, girðinga og
vatnsveitu. Enginn töluleg áætlun var lögð fram.
- Árgjald.
Formaður
lagði til óbreytt árgjald kr. 7.500,-.Samþykkt
samhljóða.
- Mál tiltekin í fundargerð:
- Kynning á ástandi vatnsveitu, vega og girðinga. Hildur gerði grein fyrir ástandi vatnsveitumála á greinargóðan og myndrænan hátt. Vatnsveitan hefur ekki starfsleyfi, heilbrigðiseftirlitið hefur gert ítrekaðar athugasemdir við vatnsveituna. Staða mála óbreytt frá árinu 2010. Haraldur kynnti þær framkvæmdir í vatnsveitumálum sem farið hafði verið í og leggja þarf í. Fór síðan yfir ástand vega- og girðingamála. Fjörug umræða um vatnsveitumálin að framsögu Hildar og Haraldar lokinni. Einkum var rætt um óvissu við kostað ef vatnsveitan yrði yfirtekin af bústaðaeigendum og leigjendum.
- Kynning á nýjum lóðarleigusamningum. Formaður kynnti einstaka liði nýs samnings. Ný lóðarleiga verður kr. 27.500,- lægri en eldri leiga. Allir lóðarhafar munu eiga kost á að ganga inn í nýjan leigusamning til 20 ára.
- Lagabreytingar kynntar af formanni. Umræður:
- 4.grein laganna fjallar um hlutverk félagsins. Lagt var til að síðasti liður hennar (sem í eldri lögum fjallaði um samskipta- og umgengnisreglur) hljóði svo:
4. Að taka ákvarðanir um
verkefni samkvæmt 19.gr. laga um frístundabyggð.
Samþykkt
samhljóða.
- Lagt var til að 5.grein laganna (sem í eldri lögum fjallaði um tilgang félagsins) hljóði svo:
5.gr Sameiginlegar veiturÁkveði aðalfundur að reka
sameiginlega aðveitu eða fráveitu skulu gerðar skriflegar
samþykktir um þann rekstur og honum haldið aðskildum frá
almennum rekstri félagsins.
Samþykkt
samhljóða
- Lagt er til að 19.grein laganna (sem áður kvað á um helmings fundarsókn til lagabreytinga) hljóði svo:
Breytingar
á samþykktum þessum verða aðeins gerðar á aðalfundi með
samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða. Tillaga um breytingu
verður einungis tekin til afgreiðslu að hún hafi verið kynnt í
aðalfundarboði og minnst þriðjungur
félagsmanna sæki fundinn.
Samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum gegn einu.
- Staðfesting á samningi um yfirtöku á reksti vatnsveitu, vega og girðinga. Formaður kynnti breytingar á samningsatriðum frá seinasta fundi. Um var að ræða nokkrar orðalagsbreytingar og að öllum byðist að gera nýjan samning. Spurningum fundarmanna var svarað af stjórninni.Samningurinn var samþykktur samhljóða.
- Vatnsveitusamþykktir. Formaður fór í gegnum tillögur að samþykkt fyrir vatnsveitudeild félagsins, alls 7 greinar. Borið upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.
- Gjaldskrá fyrir vatnsveitu Múlabyggðar. Lagt til að árgjaldið yrði kr. 55.000,- per lóð fyrir árið 2014 og stofngjaldið kr. 300.000,-. Stjórn áætlar að árgjald þurfi að vera tvöfalt eldra vatnsveitugjaldi í um það bil 2 ár. Lagt var til að lóðum nr. 17, 20, 28, 32, 33 gefist kostur á vera með í vatnsveitunni frá upphafi gegn greiðslu árgjalds, en án þess að greiða sérstakt stofngjald, og var það samþykkt samhljóða.Gjaldskrá samþykkt samhljóða
- Önnur mál
- Spurt um rétt Guðna Haraldssonar til þess að byggja á nýjum lóðum. Formaður og stjórnarmenn svöruðu fyrirspurnum.
- Sjónvarpsmál. Útsendingum á eldra formi (analog) hefur verið hætt. Athygli vakin á að menn þurfa nú stafrænan móttakara til að ná útsendingu.
Fleira ekki gert og
fundi slitið kl. 22:30
09 September 2014
Um hreinsun rotþróa í Múlabyggð
Sveitarfélagið Borgarbyggð sér um að hreinsa seyru úr rotþróm samkvæmt gildandi reglum hverju sinni. Síðasta tæming var gerð í júlí 2012.
Eigendur geta fylgst með hreinsun við sín hús með því að skrá sig inn gegnum þessa síðu: http://borgarbyggd.is/pages/box-a-forsidu/thjonusta-vid-ibua/rotthroakortid/
Eigendur sumarhúsa verða að tryggja góðan aðgang að rotþró til tæmingar og merkja losunarop þannig að auðvelt sé að finna það.
Tæming og flutningur.
14. gr.
14.1 Sveitarstjórnir skulu sjá til þess að komið sé á kerfisbundinni tæmingu á seyru úr rotþróm.
14.2 Rekstraraðilar húsnæðis eða svæða þar sem salernisúrgangur, ristarúrgangur eða seyra fellur til bera ábyrgð á allri meðferð og flutningi úrgangsins, svo fremi ekki sé í gildi sérstök heilbrigðissamþykkt sem kveður á um annað.
14. gr.
14.1 Sveitarstjórnir skulu sjá til þess að komið sé á kerfisbundinni tæmingu á seyru úr rotþróm.
14.2 Rekstraraðilar húsnæðis eða svæða þar sem salernisúrgangur, ristarúrgangur eða seyra fellur til bera ábyrgð á allri meðferð og flutningi úrgangsins, svo fremi ekki sé í gildi sérstök heilbrigðissamþykkt sem kveður á um annað.
09 May 2014
Vatn í Múlabyggð ekki drykkjarhæft
Áríðandi orðsending til húseigenda, íbúa og gesta í Múlabyggð:
Félag bústaðaeigenda í Múlabyggð hefur tekið yfir vatnsveitu staðarins með samningi við Guðna Haraldsson, eiganda Grímsstaða, sem samþykktur var á aðalfundi félagsins í apríl sl.
Stjórn FBM hefur þegar hafist handa við úrbætur við vatnsveituna sem miðast við að hún fái starfsleyfi og þar með heilbrigðisvottun, svo og að tryggja næga vatnsöflun.
Þar til að annað verður tilkynnt er bústaðaeigendum, að viðlagðri ábyrgð þeirra, bent á að vatn úr vatnsveitunni er ekki drykkjarhæft og þeim bent á að hengja upp með áberandi hætti í bústöðum sínum orðsendingu þess efnis öllum til viðvörunar.
f.h. stjórnar,
Þorvarður Kári Ólafsson, formaður
Félag bústaðaeigenda í Múlabyggð hefur tekið yfir vatnsveitu staðarins með samningi við Guðna Haraldsson, eiganda Grímsstaða, sem samþykktur var á aðalfundi félagsins í apríl sl.
Stjórn FBM hefur þegar hafist handa við úrbætur við vatnsveituna sem miðast við að hún fái starfsleyfi og þar með heilbrigðisvottun, svo og að tryggja næga vatnsöflun.
Þar til að annað verður tilkynnt er bústaðaeigendum, að viðlagðri ábyrgð þeirra, bent á að vatn úr vatnsveitunni er ekki drykkjarhæft og þeim bent á að hengja upp með áberandi hætti í bústöðum sínum orðsendingu þess efnis öllum til viðvörunar.
f.h. stjórnar,
Þorvarður Kári Ólafsson, formaður
29 April 2014
Bústaðaeigendur í Múlabyggð staðfesta yfirtöku á rekstri vatnsveitu, vega og girðinga
Á aðalfundi Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð 29. apríl 2014 staðfesti félagið einróma samning við landeiganda um að félagið yfirtaki rekstur vatnsveitu, vega og girðinga í sumarhúsahverfinu. Jafnframt var lögum félagsins breytt þannig að þessi rekstur væri heimill. Gerðar voru sérstakar vatnsveitusamþykktir og samþykkt gjaldskrá fyrir vatnsveituna. Allir þeir sem eru tengdir vatnsveitunni í dag teljast aðilar að vatnsveitudeild félagsins og einnig gefst nokkrum óbyggðum lóðum til viðbótar kostur á að vera með í deildinni frá upphafi. Framundan eru brýnar umbætur til að tryggja heilnæmi vatnsins og skilvirkni veitunnar. Nánari upplýsingar er að finna í gögnum fundarins á vefnum mulabyggd.blogspot.com. Staðfestur samningur fer hér á eftir:
24 April 2014
Umboð vegna aðalfundar 2014
Þeir sem ekki geta mætt á aðalfundinn 29. apríl eru hvattir til að nota meðfylgjandi eyðublað til að veita öðrum umboð.
23 April 2014
Sérð þú sjónvarpsútsendingu RÚV í sumarhúsinu þínu?
Frétt af sumarhus.is:
RÚV hefur nú hafið stafrænar útsendingar. Við það aukast myndgæðin til muna.
RÚV hefur nú hafið stafrænar útsendingar. Við það aukast myndgæðin til muna.
Fyrir árslok 2014 var tveimur sjónvarpsrásum RÚV dreift stafrænt til a.m.k. 99,8% landsmanna, annarri í háskerpu (HD) en hinni í hefðbundnum stafrænum myndgæðum (SD).
Samhliða uppbyggingu nýja kerfisins hefur eldra dreifikerfi RÚV verið lagt niður, enda er það tæknilega úrelt.
31. mars 2014 var útsendingum um gamla dreifikerfið hætt.
Ef sjónvarpið er tengt við myndlykil, nærð þú stafrænni útsendingu án fyrirhafnar.
En ef þú ert ekki með myndlykil og hefur notað loftnet, þarf að kanna tvennt:
1. Er stafrænn móttakari í sjónvarpstækinu?
Sé stafrænn móttakari til staðar þarf að láta sjónvarpstækið leita að stafrænu útsendingunni. Stafrænn móttakari er í mörgum nýrri tækjum og geta söluaðilar sjónvarpstækja veitt upplýsingar um hvort svo sé.
Sé stafrænn móttakari ekki í sjónvarpstækinu þarf að kaupa hann hjá söluaðilum eða leigja hjá Vodafone.
2. Þarf að skipta um loftnet og/eða breyta stefnu þess?
Ef þú nærð ekki stafrænu útsendingunni með núverandi loftneti þarftu mögulega að skipta um loftnet eða breyta stefnu þess.
14 April 2014
Fundarboð - Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð 29. apríl 2014
Aðalfundur
Félags sumarhúsaeigenda í Múlabyggð verður haldinn þriðjudaginn
29. apríl næstkomandi, kl 20.00.
Fundarstaðurinn
er að Stórhöfða 31, sal Rafiðnaðarsambandsins (gengið inn að
neðanverðu við húsið)
Fundarefni
er skv. lögum félagsins:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins,
2. Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár
lagður fram til umræðu og samþykktar,
3. Kosning formanns í samræmi við 6. gr.,
4. Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. gr.,
5. Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. gr.,
6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns,
7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár,
8. Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu
viðhaldi og rekstri skv. 15. gr.
9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra,
10. Önnur mál
Undir lið
9 verður tekið fyrir eftirfarandi:
a) Kynning á ástandi vatnsveitu, vega og girðinga.
d)
Staðfesting á samningi um yfirtöku á reksti vatnsveitu, vega oggirðinga
Mikilvægt
er að félagsmenn kynni sér meðfylgjandi gögn vel og fjölmenni á
fundinn því um stór mál er að ræða og nauðsynlegt samkvæmt
lögum að meiri hluti félagsmanna mæti til að hægt sé að
afgreiða þau. Þeir sem ekki geta mætt eru hvattir til að nota
meðfylgjandi eyðublað til að veita öðrum umboð.
Gögn
fundarins er að finna á vef félagsins http://mulabyggd.blogspot.com
Fyrir
hönd stjórnar,
Þorvarður
Kári Ólafsson formaður
Samningur um yfirtöku á rekstri vatnsveitu, vega og girðinga, til staðfestingar á aðalfundi 2014
Þessi samningur var undirritaður 11.apríl 2014 og er lagður fyrir aðalfund Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð 29. apríl 2014 til staðfestingar:
13 April 2014
Tillaga stjórnar að lagabreytingu á aðalfundi 29. apríl 2014
I. 4.grein
laganna fjallar um hlutverk félagsins. Lagt er til að síðasti
liður hennar (sem í eldri lögum fjallar um samskipta- og
umgengnisreglur) hljóði svo:
4. Að taka ákvarðanir um verkefni samkvæmt
19.gr. laga um frístundabyggð.
II. Lagt
er til að 5.grein laganna (sem í eldri lögum fjallar um
tilgang félagsins) hljóði svo:
5.gr Sameiginlegar
veitur
Ákveði aðalfundur
að reka sameiginlega aðveitu eða fráveitu skulu gerðar
skriflegar samþykktir um þann rekstur og honum haldið aðskildum
frá almennum rekstri félagsins.
III. Lagt er til að 19.grein laganna (sem
áður kvað á um helmings fundarsókn til lagabreytinga)
hljóði svo:
Breytingar á
samþykktum þessum verða aðeins gerðar á aðalfundi með
samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða. Tillaga um
breytingu verður einungis tekin til afgreiðslu að hún hafi verið
kynnt í aðalfundarboði og minnst þriðjungur félagsmanna
sæki fundinn.
Rök fyrir lagabreytingunum:
Megintilgangur þessara breytinga er að í
lögunum sé skýr heimild til þess að félagið megi reka
vatnsveitu og sjá um viðhald vega og girðinga. Til að raska ekki
númerum lagagreina eru tekin út óþarfa ákvæði, sem eru
innifalin í öðrum ákvæðum og lögum um frístundabyggð.
Jafnframt eru ekki lengur gerðar kröfur um helmings mætingu á
aðalfund til að breyta lögum félagsins, en áfram er gerð krafa
um aukinn meirihluta fundarins til að gera lagabreytingu.
Núgildandi lög félagins: http://mulabyggd.blogspot.com/2009/11/tillaga-nyjum-logum-fyrir-felag.html
Lög um frístundabyggð:
http://www.althingi.is/altext/stjt/2008.075.html
Stjórn félagsins
Tillaga að gjaldskrá fyrir vatnsveitu Múlabyggðar
Tillaga lögð fyrir aðalfund 2014
Árgjald
lóðar
|
55.000
krónur
|
|
Stofngjald
|
300.000
krónur
|
(vatnsöflunargjald
og tengibúnaður á lóðamörkum, miðað við að aðallögn sé
til staðar við lóðarmörk)
|
Rök
fyrir árgjaldi: Gjaldið samsvarar tvöfaldri lækkun
lóðarleigunnar samkvæmt yfirtökusamningi 11.apríl 2014. Þetta er sú upphæð sem stjórn telur
nauðsynlega vegna brýnna verkefna til að vatnsveitan uppfylli
lagakröfur. Stefnt er að lækkun þessa gjalds þegar lagakröfur
hafa verið uppfylltar.
Rök
fyrir stofngjaldi: Stofngjald þarf að mæta kostnaði við að afla
meira vatns og efla stofnlagnir vegna nýrra notenda, ef þeir koma
til. Gert er ráð fyrir að aðallögn sé til staðar við
lóðarmörk, en ef svo er ekki þurfa nýir notendur jafnframt að
bera kostnað af að leggja aðallögn þangað.
Tillaga að samþykktum fyrir vatnsveitudeild Félags bústaðaeigenda Múlabyggð
Tillaga lögð fyrir aðalfiund 2014
1. grein Staða
Deildin
starfar samkvæmt heimild í 4. og 5. grein laga félagsins og
samningi við landeiganda dags. 11. apríl 2014.
2.
grein Aðild
Aðilar
að deildinni eru þeir félagsmenn sem eru lóðarhafar þeirra lóða
sem vatns njóta frá sameiginlegri vatnsveitu við stofnun
deildarinnar.
Félagsmenn
í deildinni öðlast með þessu hlut í mannvirkjum og öðrum
eignum deildarinnar. Sá hlutur flyst frá seljanda eignar til
kaupanda við eigendaskipti á landi og/eða húsi samkvæmt
fasteignaskrá.
Lóðarhafar
annarra lóða á svæði félagsins en tilgreindar eru í 1. mgr.
geta orðið aðilar að deildinni með því að greiða stofngjald
samkvæmt gjaldskrá deildarinnar. Umsóknir um tengingu skal senda
skriflega til stjórnar félagsins.
3.
grein Hlutverk
Hlutverk
deildarinnar er að annast rekstur sameiginlegrar vatnsveitu fyrir
frístundabyggðina í Múlabyggð samkvæmt samningi
félagsins við landeiganda.
Í
því felst m.a. að standa fyrir fullnaðar frágangi lagna,
sameiginlegu viðhaldi, stækkun ef þurfa þykir, endurbótum á
frágangi vatnsbóls, eftirliti með gæðum vatnsins, tæmingu lagna
og áhleypingu eftir þörfum.
4.
grein Fjármál og ákvarðanir
Rekstri
vatnsveitunnar skal haldið aðskildum frá almennum rekstri
félagsins. Reikningar hennar skulu lagðir fram með reikningum
félagsins á aðalfundi þess. Aðalfundur félagsins hefur æðsta
vald í málefnum deildarinnar, en þó þannig að einungis
félagsmenn í deildinni hafa atvæðisrétt með eitt atkvæði
fyrir hverja lóð sem er í deildinni. Einnig er stjórn félagsins
heimilt að boða sérstaka deildarfundi um málefni vatnsveitunnar.
5.
grein Skyldur og heimildir
Skráður
eigandi sumarbústaðar eða lóðarhafi, sem fengið hefur tengingu
við vatnsveituna samkvæmt 2.grein hér að framan, ber ábyrgð á
greiðslu vatnsgjalds og annars kostnaðar samkvæmt 3. grein, sem
réttilega hefur verið ákveðinn samkvæmt samþykktum þessum á
löglega boðuðum fundi samkvæmt 4. grein hér að framan. Heimilt
er að loka fyrir heimæð hjá þeim, sem vanrækja að greiða
fyrrnefnd gjöld á gjalddaga, að undangenginni skriflegri aðvörun.
Einnig
er heimilt að loka fyrir heimæð hjá þeim, sem sannanlega eyða
vatni óhóflega, að undangenginni skriflegri aðvörun.
Heimilt
er að loka fyrir heimæð án fyrirvara ef nauðsyn krefur vegna
viðgerða á aðallögnum eða tenginga annarra heimæða.
Að
öðru leyti gilda ákvæði laga og reglugerða um vatnsveitur
sveitarfélaga á hverjum tíma um vatnsveitu þessa eftir því, sem
við getur átt, sbr. núgildandi lög nr. 32/2004 og reglugerð nr.
401/2005.
6.
grein Breytingar á samþykktum þessum
Breytingar
á samþykktum þessum verða aðeins gerðar á aðalfundi með
samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða. Tillaga um breytingu
verður einungis tekin til afgreiðslu að hún hafi verið kynnt í
aðalfundarboði og minnst þriðjungur
félagsmanna sæki fundinn.
7.
grein Slit
Hætti
deildin stöfum skal lögmætur aðalfundur félagsins, sem slítur
deildinni, taka ákvörðun um ráðstöfun á eignum hennar, enda
skal þess sérstaklega getið í fundarboði. Einungis félagsmenn í
deildinni hafa atkvæðisrétt við slíka ákvörðun.
Nýr lóðarleigusamningur sem öllum leigutökum í Múlabyggð býðst á árinu 2014
LÓÐARLEIGUSAMNINGUR
___________________________________________________________________________
Leigusali:
Guðni Haraldsson, kt. 310146-2829,
Grímsstöðum, Borgarbyggð.
Leigutaki/leigutakar:
_________________________________________ kt. ______________________
_________________________________________ kt. ______________________
heimili ____________________________________________________________
Lóð:
Lóðin heitir
_______________________________ landnúmer _________________
stærð _______________
Aðilar gera hér með
lóðarleigusamning um ofangreinda lóð undir sumarbústað úr landi jarðarinnar Grímsstaða,
Borgarbyggð, samkvæmt staðfestu og þinglýstu deiliskipulagi fyrir
frístundabyggð á jörðinni.
Deiliskipulag ásamt
byggingar- og skipulagsskilmálum fyrir svæðið telst hluti af samningi
þessum. Leigutakar hafa kynnt sér
deiliskipulagið og skilmálana og samþykkja það að öllu leyti.
Leiguskilmálar:
1. Leigusali
leigir leigutaka á leigu land undir eitt sumarhús á ofangreindri lóð úr
jörðinni Grímsstöðum, Borgarbyggð.
Mannvirki og notkun lóðarinnar skulu vera í samræmi við
skipulagsskilmála. Leiguafnot skv.
samningi þessum eru land skv. fyrrtöldu, akvegir og opin svæði innan
orlofshúsasvæðisins eftir samkomulagi við leigusala.
2. Leigutími er 20 ár frá
dagsetningu samnings þessa. Um
framlengingu samningsins að loknum leigutíma fer samkvæmt gildandi lögum á
hverjum tíma eða samkomulagi aðila.
3. Ársleiga er krónur 50.000 -fimmtíuþúsund og skal hún greidd í maí ár hvert skv.
greiðsluseðli (má vera rafrænn) sem landeigandi sendir leigutaka. Leigugjald breytist til samræmis við
breytingu á byggingarvísitölu milli gjalddaga ár hvert. Grunnleiga samnings þessa er miðuð byggingarvísitölu
í mars 2014 eða 118,9 stig (grunnur frá 2010).
Sé leigan ekki greidd fyrir eindaga (mánuði eftir gjalddaga) falla á
hana hæstu lögleyfðir dráttarvextir og innheimtukostnaður komi til
lögfræðilegrar innheimtu.
Verði leigusamningur
endurnýjaður í lok leigutíma skal leigufjárhæð í nýjum leigusamningi miðuð við
eldri leigu eins og hún hefur breyst með verðtryggingu.
4. Í leigugjaldi er innifalið afnot
lands sbr. 1.gr.
5. Leigutakar kaupa kalt vatn af
félagi sem rekur vatnsveitu á svæðinu.
Þeir greiða stofnkostnað og fyrir kaup á vatninu skv. ákvörðun
félagsins.
Leigutakar afla sjálfir
rafmagns frá þeim aðila sem selur það á svæðinu og greiða allan kostnað vegna
þess.
6. Umgengni og nýting lóðar skal vera
snyrtileg og í samræmi við gildandi reglur.
Leigutaka er með öllu óheimilt að nýta landið til annars en að framan
greinir og getur leigusali krafist þess með sérstakri áskorun til leigutaka að
óheimilli notkun landsins, t.d. geymslu gamalla ökutækja eða annarra
lausafjármuna, sé tafarlaust hætt að viðlagðri riftun leigusamnings. Sama gildir ef notkun leigutaka á hinu leigða
landi hefur í för með sér óþrifnað og er til óþæginda fyrir aðra leigutaka á
svæðinu.
7. Leigutaki greiði alla skatta og
gjöld af hinni leigðu lóð og halda uppi lögskilum af henni frá undirritun
þessa leigusamnings. Sama gildir
um skatta og gjöld af
mannvirkjum á lóðinni.
8. Leigutaki skuldbindur sig til að
fara að fyrirmælum skipulags- og heilbrigðis-yfirvalda að öllu leyti hvað
varðar frágang á skolp- og frárennsli.
9. Leigutaki
má veðsetja eign sína, þ.e. hús eða
önnur mannvirki á lóðinni með tilheyrandi lóðarréttindum. Framsal á réttindum skv. samningi þessum er heimilt
en þó getur leigusali hafnað framsali ef lóðarleiga er í vanskilum. Framsal skal því ávallt áritað um samþykki
leigusala og gildir þá um leið sem tilkynning til hans um framsalið. Komi til sölu á réttindum leigutaka á
leigusali forkaupsrétt á eignum leigutaka á lóðinni. Leigutakar eiga
forkaupsrétt að lóðinni verði hún seld. Um
forkaupsréttinn gilda almennar reglur þar um á hverjum tíma.
10. Leigutaka er skylt að vera í félagi
orlofshúsaeigenda á svæðinu, en félaginu er ætlað að koma fram sem almennur
málsvari allra leigutaka á svæðinu
gagnvart leigusala og taka að sér sameiginleg mál leigutaka eftir því sem nánar
er ákveðið í samþykktum félagsins. Félagið annast m.a. viðhald girðinga og vega
á sumarhúsasvæðinu. Skal leigutaka skylt
að hlíta löglega teknum ákvörðunum félagsfunda.
11. Verði verulegar vanefndir á
samningi þessum fer um riftun skv. lögum.
12. Samningur þessi heldur gildi sínu
þótt eigendaskipti verði að jörðinni Grímsstöðum, Borgarbyggð.
13. Rísi mál út af leigusamningi þessum
skal það rekið fyrir Héraðsdómi
Vesturlands.
14. Samningur þessi er gerður í þremur
samhljóða eintökum, eitt handa hvorum aðila og eitt til þinglýsingar.
15. Leigutakar greiða þinglýsingar- og
stimpilgjöld vegna samnings þessa.
Öllu
framangreindu til staðfestu, rita aðilar nöfn sín í viðurvist votta.
Grímsstöðum, /
2014.
Leigusali: Leigutakar:
__________________________ _______________________________
Guðni Haraldsson
_______________________________
Vottar að fjárræði,
réttri dagsetningu og undirritun aðila:
_______________________________________kt.___________________
_______________________________________kt.___________________
Subscribe to:
Posts (Atom)