25 May 2017

Hnitsetning lóða eftir deiliskipulagsuppdrætti


Búið er að hnitsetja lóðir í Múlabyggð samkvæmt gildandi deiliskipulagsuppdrætti. Þetta má skoða í landeignaskrá sem birt er á vefnum undir https://geo.skra.is/landeignaskra/135969 

Með því að smella á viðkomandi lóð birtast ítarupplýsingar um hana, þ.á.m. skráð stærð og mæld stærð skv.deiliskipulagi. Lóðir nr. 33, 34 og 35 hafa ekki verið hnitsettar vegna misræmis í gögnum. Deiliskipulagsuppdrátturinn sem miðað var við er á vef Skipulagsstofnunar:  http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?numer=2452 (efra skjalið).

Lúpínuályktun

Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð ályktar að lúpína sé ekki velkomin í sumarhúsabyggðinni. Stjórn félagsins er falið að beita viðurkenndum aðferðum til að útrýma lúpínu af sameiginlegum svæðum, án eiturs. Einnig eru lóðarhafar hvattir til að gera slíkt hið sama á sínum lóðum.

Þannig samþykkt á aðalfundi 23.maí 2017 

24 April 2017

Aðalfundarboð 2017

Fundarboð - Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð 9. maí 2017

Aðalfundur Félags sumarhúsaeigenda í Múlabyggð verður haldinn þriðjudaginn 9. maí næstkomandi, kl 20.00.

Fundarstaðurinn er í safnaðarheimili Bústaðakirkju, gengið inn að sunnanverðu.

Fundurinn hefst á pylsukynningu og eldvarnafræðslu.

Að því loknu hefst dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og um vatnsveituna.

2. Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar. Nær einnig yfir vatnsveitudeild, en rekstur hennar er sýndur sérstaklega í reikningunum.

3. Kosning formanns í samræmi við 6. gr.

4. Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. gr.

5. Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. gr.

6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns.

7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár. Einnig fyrir vatnsveituna.

8. Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv. 15. gr. Einnig ákvörðun vatnsveitugjalds skv. samþykktum vatnsveitudeildar.

9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra: Sjá meðfylgjandi Drög að ályktun um lúpínu.

10. Önnur mál.

Vinsamlegast athugið að fundurinn er jafnframt aðalfundur vatnveitudeildar félagsins. Málefni vatnsveitudeildar verða tekin fyrir undir viðeigandi liðum á dagskránni í samræmi við samþykktir deildarinnar.

Nánar á vef félagsins http://mulabyggd.blogspot.com

Stjórnin

P.s: Drög að ályktun um lúpínu
Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð ályktar að lúpína sé ekki velkomin í sumarhúsabyggðinni. Stjórn félagsins er falið að beita viðurkenndum aðferðum til að útrýma lúpínu af sameiginlegum svæðum. Einnig eru lóðarhafar hvattir til að gera slíkt hið sama á sínum lóðum.

Aðalfundargerð 2016

Fundur haldinn þann 7. júní 2016 í sal slökkviliðsins að Tunguhálsi 13.
Mættir voru eftirfarandi fulltrúar, lóðarnúmer innan sviga: Þorvarður Kári Ólafsson og Anna Kristín Sigurðardóttir (19), Magnea Antonsdóttir og Sigurður Lyngdal (7), Aldís M Norðfjörð og Arnar Páll Hauksson (30), Þórdís Árnadóttir, Ingvar Birgir Friðleifsson og Hildur Ingvarsdóttir (33 og 34), Ásgerður Geirarðsdóttir (28 og 29), Fanný B M Jóhannsdóttir (4), Engilbert Engilbertsson (16), Haraldiur H Jónsson (13), Sigmundur Andrésson (24), Pétur Helgason (12), Ingunn Stefánsdóttir (10), Pétur Kristinsson (17, 18 og 20), Kári Pálsson (23), Guðrún Svanborg Hauksdóttir (36).

Anna Kristín Sigurðardóttir var kosin fundarstjóri og Guðrún Svanborg Hauksdóttir fundarritari.
Fundurinn var löglegur, fulltrúar 19 lóða mættir.

Dagskrá var samkvæmt aðalfundarboði.

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og um vatnsveituna.
Þorvarður kynnti. Sjö manns er í stjórn , þar af fimm aðalmenn. Fimm fundir voru haldnir. Helstu mál voru endurbætur vatnsveitunnar, girðingarmál, eldvarnarklöppur og endurnýjun lóðarleigusamninga.
Girðingar. Girðingadagur var í ágúst, 15 manns bættu, byrjað var á girðingum austast, stefnt að því að halda áfram vestur eftir í sumar
Sinaklöppur. Ákveðið var á síðasta aðalfundi að kaupa sinaklöppu á hvert hús. Síðar kom í ljós að ráðlagt er að hafa þær færri og á meira áberandi stað. Stjórnin leggur til að hafa tvær klöppur á tveimur stöðum nærri veginum neðan hverfisins. Stefnt að kaupum og framkvæmdum í sumar.
Lóðaleigusamningar. Guðni, landeigandi, hefur ekki staðið við það sem samþykkt var samhliða yfirtökusamningi vatnsveitunnar. Ítrekað hefur verið fram á það við hann að endurnýja samninga við félagsmenn, nú síðast talaði Þorvarður við hann fyrir stuttu,, en alltaf er einhver undansláttur, nú síðat hnitin. Nýlega gerði Guðni nýja lóðarleigusamninga við nýja eigandur húsa númer 23 og 25. Þeir virðast vera þokkalegir, nema hvað í þeim er talað um mælda stærð, skráða stærð og stærð sem lóðarleiga er ákveðin eftir. Þetta hljómar mjög sérkennilegar, nær væri að hafa eina rétta stærð. Þær tölur finnast ekki. Að sögn fékk Guðni mann til að hnitsetja lóðirnar, en þau hnit virðast óínánaleg, Guðni segir þau vera í Borgarnesi, en svo virðist ekki vera. Þar er málið statt nú. Skra.is er heimasíða með skráðum lóðamörkum, á henni eru nú skráðar lóðir gömlu Eimskipafélagsbústaðanna (nú í eigu banka). Eigandi aðlægra lóða verður að hafa samþykkt þessi mörk, í þessu tilfelli Guðni. Eitthvað veit hann þá hugsanlega.
Þorvarður tekur að sér að fylgja þessu máli eftir.
Vatnsveitumálin Hildur og Haraldur kynntu. Árið 2014 voru gerðar endurbætur eystra megin. Á síðasta ári var ráðist í lagfæringar vestan megin. Í ljós kom í ljós að tankar sem Guðni hafði sagt vera 3600 l voru 1500 l stórir. Á öðrum hafði lokið fallið niður og hann var ónýtur. Skipt var um hann og 4500 l tankur settur í staðin. Hinn var þvegni (og var ekki vanþörf á). Frárennslið frá tönkunum reyndist fara upp á við sem nemur 0,5 m á leið niður að bústöðunum, sem veldur óhjákvæmilega lofttappa í leiðslunum. Þetta var lagað. Öllu var lokað, sáð í og gamla girðingin löguð. Grafin hafði verið prufuhola nærri vatnsbólinu, hún virðist gefa þokkalega af sér, en yfirborðsvatn kemst að. Skoðað verður hvort ekki sé unnt að nýta þessa lind á einhvern hátt, annars þarf að finna aðra leið til að afla meira vatns. Vel hefur gengið með vatnið eftir framkvæmdirnar, þó varð vatnslaust í einhverjum bústöðum fyrir hálfum mánuði, sennilega vegna leka, þar sem vatn kom út um yfirfall við vatnsbólið.
Til stendur að útbúa leiðbeiningar um hvað gera skuli verði vatnlaust, gott að hafa slíkar í hverjum bústað. Gott að geta leita til einhvers ákveðins pípulagningamanns, Haraldur hefur talað um það við Guðjón pípulagningamann í Borgarnesi, sem er til reiðu, en gera þarf við hann formlegan samning.
Mikilvægt er að fara varlega með vatn og nota það í hófi.
Sækja þarf um starfsleyfi ef vatnsveita er fyrir meira en 50 manns eða meira en 20 hús. Umsóknin er flókin og krefst heilmikilla upplýsinga. Hildur hefur verið í sambandi við Helga hjá heilbrigðiseftirlitinu, ef til vill er unnt að einfalda umsóknina.
Á fundinum kom upp sú hugmynd að skipta vatnsveitunni í tvennt, eystri og vestari, en stjórn og fjárhagur yrðu sameiginleg. Stjórnin tekur það til athugunar.

2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar
Reikningurinn nær einnig yfir vatnsveitudeildina, aðskilið í bókhaldinu. Allir félagsmenn greiða félagsgjöld, en ekki allir vatnsveitugjöld.
Skoðunarmenn félagsins höfðu samþykkt reikninginn.
Ársreikningurinn var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.

3. Kosning formanns í samræmi við 6. gr.
Þorvarður gefur ekki kost á sér áfram.
Sigurður Lyngdal bauð sig fram og var kosinn einróma.

4. Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. gr.
Sigurður fer úr stjórn yfir í embætti formanns. Pétur Helgason var kosinn í hans stað.

5. Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. gr.
Haraldur dregur sig úr stjórn sem vara maður, Þorvarður býður sig fram í hans sæti og var kosinn.

6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns.
Þórdís og Sigmundur kosin áframhaldandi sem skoðunarmenn.

8. Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv. 15. gr. Einnig ákvörðun vatnsveitugjalds skv. samþykktum vatnsveitudeildar.
Þessi liður var tekinn fram yfir 7. líð, þar sem félagsgjöldin eru forsenda rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár.
Tillaga stjórnar var að tvöfalda félagsgjöldin fyrir næsta ár til að standa undir kostanaði við vegaviðgerðir. Þau hækki úr 7.500 kr. í 15.000 kr. Samþykkt samhljóða.
Tillaga stjórnar var að vatnsveitugjaldið verði óbreytt, 27.500 kr. Samþykkt samhljóða

7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár. Einnig fyrir vatnsveituna.
Þorvarður kynnti grófa áætlun.
Næsta stórverkefni verður viðhald vaganna. Til stendur að gera áætlun um framkvæmdir næstu þrjú til fjögur árin. Til þess þarf að afla upplýsinga. Sigurður hefur talað við bóndann að Grenjum sem tók vel í að hjálpa til með vegina. Vandinn er að fá góðan ofaníburð sem væri ekki of dýr. Langt er í næstu námu. Spurning hvort hægt sé að kaupa efni af vegagerðinni.
Farið verður varlega í fjármálum, grundvallaratriði að hleypa félaginu ekki í skuldir.
Samþykkt að félagsmenn treystu stjórninni til að kanna þetta mál.
Haldið verður afram með girðingavinnu, stefnt að vinnudegi í ágúst sambærilegum þeim sem var síðasta sumar. Óverulegur kostnaður.
Haldið verður áfram vinnu með sinuklöppur, þær settar upp á vinnudeginum.
Áætlunin samþykkt samhljóða.

9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra
Engin mál bárust.

10. Önnur mál.
Hildi og Haraldi var þakkað starf sitt við vatnsveituna.
Þorvarði var þakkað formannsstarf sitt.
Engilberti þökkuð öll aðstoðin við vatnsveituframkvæmdir.

Kári Pálsson (nr. 23) hafði hugmyndir um hvernig afla mætti vegagerðarefnis.
Reikna þarf út hve margir fermetrar sameiginlega vegirnir eru.
Rætt að þeir sem hafi engan veg skuli þurfa að borga fyrir vegi (þá til annarra). Sú skylda er ótvíræð samkvæmt lögum.
Ingunn spurði hvort ekki yrði unnt að fá gert við heimkeyrslur samfara vegavinnu, á eigin kostnað. Ákveðið að öllum verði sent boð um slíkt þegar framkvæmdir fari í gang.
Hún þakkaði félaginu líka störf sín við vatnsveituna. Henni fannst hafa tekist vel til eftir margra ára bras við Guðna.
Kári ræddi viðskipti sín við byggingafulltrúa, svo virðist sem samþykki þurfi fyrir skúr sem er minni en 15 m2.. Það stangast á við reglugerðir, eins og Aldís upplýsti. Hún ætlar að setja krækjur í núgildandi reglugerðir á heimsíðu félagsins.


Fundi slitið kl. 21.35.