16 October 2026

Aðalfundargerð 2025

 Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð

haldinn á Sléttuvegi 29, Reykjavík þann 5. maí 2025 kl. 20


Mættir voru 24 sem voru fulltrúar bústaða nr. 1, 2, 3, 4, 8, 10, 11, 12, 16, 17, 18, 19, 20, 24, 25, 30 og 35.


Pétur formaður setti fundinn og skipaði starfsmenn fundarins, fundarstjóri Þorvarður og fundarritari Valdís. Löglega var boðað til fundarins, þ.e. með 2ja vikna fyrirvara. Birgir ritari sagði að finna þurfi lausn á því að allir fái póst með fundarboði. 


1. Skýrsla stjórnar. Formaður sagði að ekki hefði mikið gerst frá seinasta aðalfundi sem var í október 2022. Ekki hefur verið farið í girðingavinnu og sleppa rollur því alltaf inn á svæðið. Varðandi vatnsveituna, þá hefur frosið í lögnum þrátt fyrir framkvæmdir en það fraus líka víðar í Borgarfirði. Ekki varð tjón af. Þrýstingsfall hefur orðið í öðru vatnsbólinu. Tveir til þrír stjórnarfundir hafa verið haldnir. Ekkert hefur verið unnið í vegamálum.

2. Ársreikningar. Snæbjörn gjaldkeri lagði fram ársreikninga fyrir síðustu þrjú ár og voru þeir samþykktir einróma. 

3. Kosning formanns. Pétur gefur ekki kost á sér áfram. Stefán Árni bauðst til að taka að sér embættið og var það samþykkt. 

4. Kosning annarra stjórnarmanna. Snæbjörn gjaldkeri gaf áfram kost á sér til gjaldkerastarfa  og Birgir gaf áfram kost á sét til ritarastarfa. 

5. Kosning varamanna. Valdís gaf áfram kost á sér sem varamaður og Pétur bauðst til að vera varamaður. 

6. Kosning skoðunarmanns/manna reikninga. Þorvarður Kári Ólafsson og Lilja Þorsteinsdóttir gáfu kost á sér. 


Stjórnin næsta starfsárs verður þá þannig:

Stefán Árni, formaður

Snæbjörn Sigurðsson, gjaldkeri

Birgir Örn Einarsson, ritari

Magnea Antonsdóttir meðstjórnandi (nr. 7)

Einar Jónsson meðstjórnandi (nr. 1 og 2)

Valdís B. Guðjónsdóttir, varamaður

Pétur Helgason, varamaður

Þorvarður Kári Ólafsson, skoðunarmaður reikninga

Lilja Þorsteinsdóttir, skoðunarmaður reikninga.


7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár. Einnig fyrir vatnsveituna. Félagsgjöld þurfa að standa undir kostnaði. Það þurfa að vera til peningar fyrir óvæntum kostnaði. Rætt var um gerð gangstíga, hús fyrir kurlara og staðsetningu þess. Bæta þarf við liði í bókhaldið sem heitir Kurlari og lagt til að 1 milj. króna sett í húsnæði fyrir kurlarann og tæki og tól sem honum fylgja. Þetta var samþykkt einróma. 

8. Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv. 15. gr. Einnig ákvörðun vatnsveitugjalds skv. samþykktum vatnsveitudeildar. Lagt var til að árgjald yrði óbreytt þ.e. 

20 þús. kr fyrir bústað, 

10 þús. kr fyrir óbyggð lóð,

25 þús. kr fyrir vatnsveitu.

9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra:

a) Snjómokstur. Hefur gengið vel, lítið verið um snjómokstur. Ferlið hefur verið þannig að haft er samband við Birgi þegar útlit er fyrir mikla umferð og hann leggur mat á hvort þurfi að moka. 

b) Girðingarvinna. Rollur komast inn alls staðar. Misjafnt hvað fólki finnst um rollurnar. Arnar Páll er griðingastjóri. 

c) Vatnsból. Lagt til að byrjað sé á að kíkja á eystra vatnsbólið. Spurning hvort það þurfi að stækka. Sírennsli þarf að vera þegar frýs. Umræða um hitaþræði. Ný stjórn þarf að leita ráða hjá sérfræðingum vatnsveitumál.  

d) Göngustígar, girðingastigar og brýr. Vantar brú yfir skurð. Safna kurli úr kurlara til að leggja í stíga. Einar segir að það ætti ekki að kosta mikið að smíða stiga. Það þarf að kaupa brú. 

e) Kurlari. Rætt var um kurlara undir lið um framkvæmda- og kostnaðaráætlanir. Ákveðið að setja allt að milljón í uppbyggingu á áhaldaskúr. 

f) Brenna um verslunarmannahelgi. Guðni bað um að ekki yrði safnað í brennuna of snemma, hún má ekki vera of stór. Meira eins og varðeldur frekar en stórt bál. Guðjón er brennustjóri. 

g) Öryggismál – Vatnsbrunnar fyrir slökkvilið. Varðandi vatnssöfnun, ef eldur kæmi upp í sumarbústaðalandinu, kom fram að í næsta nágrenni er ágætis aðgengi að vatni og kannski ekki þörf á vatnssöfnun. Lagt var til að fá slökkviliðið til að koma í heimsókn og koma með tillögur. 

10. Önnur mál:

Vegurinn. Vegagerðin sér um að hefla veginn. Nú er lögheimili að Grenjum. 

Rörið/brúin. Hún er orðin mjög mjó. Lagt er til að þetta sé tilkynnt til vegagerðarinnar. Möguleiki að hlustað verði á lögbýlin. 

Sorpmál. Ekki gott að það skuli ekki vera hægt að flokka rusl. Bent var á flokkunarstöð í Borgarnesi. Við borgum sorphirðugjald. 

Innheimta ársgjalds og vatnsveitugjald. Rukkað verður fyrir árgjald og vatnsveitugjöld fljótlega. 

Fundi slitið.



21 April 2025

Fundarboð 2025

Aðalfundarboð 2025

 

Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð verður haldinn Mánudag 5 maí næstkomandi, kl 20.00.við Sléttuveg 29, 103 Reykjavík.


Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:


1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og um vatnsveituna. 

 

2. Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar. Nær einnig yfir vatnsveitudeild, en rekstur hennar er sýndur sérstaklega í reikningunum. 

 

3. Kosning formanns í samræmi við 6. Gr.

 

4. Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. Gr.

 

5. Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. Gr. 

 

6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns.  

 

7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár. Einnig fyrir vatnsveituna.


8. Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv.15. gr. Einnig ákvörðun vatnsveitugjalds skv. samþykktum vatnsveitudeildar.


9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra: 


a) Snjómokstur.


b) Girðingarvinna. 


c) Vatnsból.


d) Göngustígar, girðinga-stigar og brýr. 


e) Kurlari. 


f) Brenna um Verslunarmannahelgi.


g) Öryggismál - Vatnsbrunnar fyrir slökkviliðið. 


10. Önnur mál. 


Vinsamlegast athugið að fundurinn er jafnframt aðalfundur vatnsveitudeildar félagsins. Málefni vatnsveitu deildar verða tekin fyrir undir viðeigandi liðum á dagskránni í samræmi við samþykktir deildarinnar.

 

Nánar á vef félagsins http://mulabyggd.blogspot.com


Stjórnin


11 December 2023

Aðalfundargerð 2022

  Aðalfundargerð 2022


Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð haldinn  fimmtudaginn 27. október kl 20.00 í

safnaðarheimili Bústaðakirkju.

Mættir voru fulltrúar frá lóðum númer 1, 2, 7, 10, 11, 12, 13, 15, 17, 18, 19, 20, 24, 25, 30,

33, 34 og 37.

Formaður setti fundinn. Fundarstjóri var Þorvarður og fundarritari Valdís.

Fundarstjóri byrjaði á að ganga úr skugga um að löglega hafi verið boðað til fundarins og

reyndist svo vera. Ritari upplýsti að erfiðlega hafi gengið að koma fundarboðum til nokkurra

félaga þar sem sumir hafa ekki uppfært netföngin sín en það er ekki á ábyrgð félagsins ef fólk

hefur ekki tilkynnt um ný netföng.

Dagskrá var samkvæmt lögum félagsins.

1. Formaður flutti skýrlu stjórnar um starfsemi félagsins og um vatnsveituna. Hann ræddi um

breyttan fundartíma en aðalfundir hafa venjulega verið haldnir í maí. Keyptur var trjákurlari

og hann tekinn í notkun. Farið var í girðingarvinnu með vesturhlið svæðisins í júní og haldin

veisla í framhaldi af henni. Brennur voru haldnar um verslunarmannahelgar og síðan var aftur

farið í girðingarvinnu í kringum vatnsbólið. Greitt var fyrir snjómokstur.

2. Gjalkeri lagði fram staðfestir ársreikningar félagsins til umræðu og samþykktar ásamt

vatnsveitureikningum. Hann óskaði eftir að fjalla líka um liði 7 og 8.

Það kom fram að engar skuldir hvíla á félaginu.

Í rekstraráætlun var lagt til að gjald verði óbreytt 20.000 kr fyrir byggðar lóðir og 10.000 kr

fyrir óbyggðar lóðir og vatnsveitugjald verði áfram 25.000 kr.

Umræða var um hvort ástæða væri til að safna peningum sem greitt er til vatnsveitunar í sjóð.

Gjaldið hefði verið svona hátt í byrjun þegar verið var að byggja vatnsveituna. Lagt var til að

gjaldið yrði lækkað í 15.000 kr. Gjaldkeri svaraði að það gæti borgað sig að eiga allt að fimm

milljónir í sjóði til öryggis ef eitthvað fer úrskeiðis. Þá var stungið upp á hvort það borgaði sig

ekki að kaupa tryggingar til öryggis en það borgar sig líklega ekki þar sem tengingar innan

lóðar er á ábyrgð eiganda, heildar lögnin er á okkar ábyrgð. Rifja þarf upp skilmála sem gerðir

voru þegar vatnsveitan var tengd. Vísað var til stjórnar að rifja upp reglurnar og athuga

almennar reglur um veitur, allavega það sem gildir innan félagsins. Tillagan um lækkun

vatnsveitugjald var dregin til baka.

Væntanlegir kostnaðarliðir eru girðingarvinna, snjómokstur og kaup á kerru undir kurlarann.

3. Kosning formanns. Formaður samþykkti að sitja áfram í næstu stjórn.

4. Kosning annarra stjórnarmanna. Gjalkeri og ritari samþykktu að sitja áfram í næstu stjórn.

5. Kosning varamanns. Aldís óskaði eftir að ganga úr stjórn og Magnea bauð sig fram í

hennar stað sem meðstjórnandi. Valdís bauð sig fram sem varamaður. Hildur situr áfram sem

varamaður.

6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns. Þeir sitja áfram.  

Stjórn skipa: Pétur Helgason formaður (nr. 12)

Birgir Einarsson ritari (nr. 1 og 2)

Snæbjörn Sigurðsson gjaldkeri (nr. 1 og 2)

Magnea Antonsdóttir meðstjórnandi (nr. 7)

Einar Jónsson meðstjórnandi (nr. 1 og 2)


Valdís B. Guðjónsdóttir varamaður (nr. 1 og 2)

Hildur Ingvarsdóttir varamaður (nr. 33 og 34)

Sigmundur Andrésson (nr. 24) skoðunarmaður reikninga

Þorvarður Kári Ólafsson (nr. 19) skoðunarmaður reikninga


7. Rekstrar og framkvæmdaáætlanir voru samþykktar.  

8. Stjórn lagði til að félagsgjald verði óbreitt, þ.e. 20.000 kr fyrir byggðar lóðir og 10.000 kr

fyrir óbyggðar lóðir, og vatnsveitugjald verði áfram 25.000 kr. Það var samþykkt samhljóða.

9. Mál sem tiltekin voru í fundarboði og afgreiðsla þeirra: 

a) Snjómokstur. Gert var ráð fyrir 250.000 kr í snjómokstur á seinasta aðalfundi en

kostnaður varð u.þ.b.140.000 kr þrátt fyrir snjóþungan vetur. Samþykkt var að gera

áfram ráð fyrir 250.000 kr í snjómokstur.

b) Girðingarvinna. Sést hefur til kinda á svæðinu en austanmegin við svæðið er opið inn í

skógræktina hans Guðna. Guðna ber skylda til að girða skógræktina. Kanna þarf hvernig

hann stendur við það einnig þarf að aðgreina lóðarmörk. Það þarf að grisja gróður sem

liggur að girðingu. Sinna þarf reglulegu viðhaldi á girðingum og prílum.

c) Göngustígar, girðingastigar/prílur og brýr. Við athugun á því hvað prílur kosta þá

reyndust þær vera mjög dýrar. Lagt var til að lögð yrði til hliðar ákveðin upphæð árlega.

e) Kurlari. Hann er þungur og erfitt að flytja hann. Það þarf að setja hann á kerru og breiða

yfir með segldúk. Einnig vantar leiðbeiningar. Valdís tók að sér að útbúa leiðbeiningar

til að fylgja með honum. Lagt var til að byggður yrði skúr til að geyma kurlarann og þá

þau áhöld og verkfæri sem fylgja girðingarvinnunni. Þessu var vísað til stjórnar.

f) Brenna um Verslunarmannahelgi. Brenna var haldin um verslunarmannahelgina en ekki

er gert ráð fyrir að haldin verði önnur brenna fyrir næsta aðalfund sem verður í mái.

g) Öryggismál - Vatnsbrunnar fyrir slökkviliðið. Pétur átti fund með slökkviliðinu í

Borgarnesi. Það er spurning um stað þar sem hægt er að ná í vatn til að dæla á tanka

slökkviðliðsbíls. Vandamál slökkviliðsins er að ná í vatn. Við höfum Urriðaá og Stekká

auk lækja innan hverfisins. Við þurfum að merkja þá staði sem henta best og setja upp

tanka eða búa til hyli. Við höfum klöppur við hvert hús. Við erum nokkuð vel sett hvað

flóttaleiðir varðar. Lagt er til að hafa 50 m slöngu og slökkvitæki við hvern bústað eða

undir bústöðum. Lýst var eftir sjálfboðaliðum til að vinna þetta mat áfram. Aldís tók að

sér að athuga með skilti og stundið var upp á Þorvarði sem brunamálastjóra hverfisins.

Þau samþykktu og gjaldkeri sagði að rými væri fyrir fjárútlátum.

10. Önnur mál. Spurning um hvort hægt væri að útbúa lista yfir eigendur bústaða svo hægt

væri að ná í fólk ef eitthvað kæmi upp á samanber atvik sem átti sér stað þegar reykskynjari

fór í gang í mannlausum bústað.


Fundi slitið kl 21:53

26 October 2022

Rekstraráætlun 2022 & Ársreikningur 2021

Rekstraráætlun 2022





Ársreikningur 2021


12 October 2022

Netföng félagsmanna

Netföng félagsmanna

Við erum að fá mikið af tilkynningum um að netföng séu óvirk. Best er að notum tækifærið og uppfærum listann. Vinsamlegast sendið netfang ykkar á póstfangið mulabyggd@gmail.com með fyrirsögninni nýtt Netfang og ekki verra að láta húsnúmer fylgja með. 
Fyrirfram þakkir!

Aðalfundarboð 2022

 Aðalfundarboð 2022

 

Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð verður haldinn  fimmtudaginn 27. Oktober næstkomandi, kl 20.00.

Fundarstaðurinn er í safnaðarheimili Bústaðakirkju, gengið inn frá Bústaðavegi.


Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:


1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og um vatnsveituna. 

 

2. Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar. Nær einnig yfir vatnsveitudeild, en rekstur hennar er sýndur sérstaklega í reikningunum. 

 

3. Kosning formanns í samræmi við 6. Gr.

 

4. Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. Gr.

 

5. Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. Gr. 

 

6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns.  

 

7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár. Einnig fyrir vatnsveituna.  


8. Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv.15. gr. Einnig ákvörðun vatnsveitugjalds skv. samþykktum vatnsveitudeildar.


9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra: 


a) Snjómokstur. Yfirferð


b) Girðingarvinna. 


c) Vatnsból.


d) Göngustígar, girðingastigar og brýr. 


e) Kurlari. 


f) Brenna um Verslunarmannahelgi 


g) Öryggismál - Vatnsbrunnar fyrir slökkviliðið. 


10. Önnur mál. 



Vinsamlegast athugið að fundurinn er jafnframt aðalfundur vatnsveitudeildar félagsins. Málefni vatnsveitu deildar verða tekin fyrir undir viðeigandi liðum á dagskránni í samræmi við samþykktir deildarinnar.

 

Nánar á vef félagsins http://mulabyggd.blogspot.com

 

Stjórnin


Aðalfundargerð 2021

 Aðalfundargerð 2021

 

Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð var haldinn þriðjudaginn 15. Júní 2021  kl 20.00.

Fundarstaðurinn; Safnaðarheimili Bústaðakirkju

 

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:


1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og um vatnsveituna.

Birgir fór yfir mál síðastliðið ár.

  • Lítið af framkvæmdum

  • Kaup á kurlara

  • Lítið gert í vatnsmálum

 

2. Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar. Nær einnig yfir vatnsveitudeild, en rekstur hennar er sýndur sérstaklega í reikningunum.  Samþykkt af félagsmönnum

 

3. Kosning formanns í samræmi við 6. Gr.  Staðfest óbreytt

 

4. Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. Gr. Staðfest óbreytt

 

5. Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. Gr. Óskað var eftir nýjum meðlimum, Staðfest óbreytt

 

6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns. Óskað eftir sömu og áður, (Kári, Sigmundur og Þorvarður. ) Staðfest óbreytt

 

7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár. Einnig fyrir vatnsveituna. 

  • Stjórn leggur til að gjöld séu óbreytt

  • Ekki var farið í hreinsun vegna veðurs, fara skal í framkv. í haust 2021 við að  sótthreinsa vatnsbólin

  • Staðfest 

 

8. Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv.15. gr. Einnig ákvörðun vatnsveitugjalds skv. samþykktum vatnsveitudeildar.

  • Gjöld óbreytt

  • Girðingavinna heldur áfram

  • Kaup á kurlara helsti kostnaður

  • Snæbjörn spyr hvort ætti að skipta greiðslum vegna félagsgjalda ? Breytt í eingreiðslu.

  • Félagsgjöld samþykkt

  • Áætlum samþykkt


9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra: 


a) Snjómokstur. Yfirferð

  • Frásögn hvernig hann var nýttur. Fara yfir áætlun um hvernig kostnaður getur breyst milli ára


b) Girðingarvinna. Lagt er til að félagið standi að viðgerð á girðingu á vesturenda sumarlandsins. Frá vegi upp að fjallskila girðingu

Ákveðið var að hafa girðingar dag í kringum 25-27 júní, fá Halla á Háhóli með í verkið? Kaup á staurahamri


c) Vatnsból:  Lagt er til að vatnsbólin verði hreinsuð og yfirfarin og girðingar endurbyggðar

Lagt til að reka niður staura fyrir girðingu þegar vatnsbólin eru þrifin.


d) Göngustígar, girðinga stigar og brýr. Lagt er til að félagið setji sér langtímamarkmið við að viðhalda girðingastigum, göngustígum og brú yfir skurði.

Lagt til að horfa á þetta sem langtíma verkefni og lagt fram sem rekstrarliður


e) Nýr kurlari.

  • Gera notkunarreglur fyrir kurlarann og setja á facebook

  • Tillaga um að það verði keyptur yfirbyggð kerra með sliskju



f) Ljósleiðari

  • 250.000 per stofn + Metra gjald að bústað 

  • Hægt er að óska eftir tengingu haust 2021


g) Brenna um Verslunarmannahelgi 

  • Gera þarf reglur um söfnun á hauginn fyrir brennuna

  • Óskað var eftir að Guðjón sjái um hana eins og s.l ár


10. Önnur mál. 

  • Ráðast í að grisja trén og lúpínu við vegi.

  • Vatnsbrunnar fyrir slökkviliðið og hugsanlegar staðsetningar

  • Rimlahlið þarf að yfirfara 

Mættir voru:

Stjórnin

- - -


09 June 2021

Aðalfundarboð 2021 ásamt dagskrá

 Aðalfundarboð 2021

 

Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð verður haldinn þriðjudaginn 15. Júní næstkomandi, kl 20.00.

Fundarstaðurinn er í safnaðarheimili Bústaðakirkju, gengið inn frá Bústaðavegi.

 

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:


1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og um vatnsveituna.

 

2. Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar. Nær einnig yfir vatnsveitudeild, en rekstur hennar er sýndur sérstaklega í reikningunum. 

 

3. Kosning formanns í samræmi við 6. Gr. 

 

4. Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. Gr.

 

5. Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. Gr.

 

6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns.

 

7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár. Einnig fyrir vatnsveituna.

 

8. Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv.15. gr. Einnig ákvörðun vatnsveitugjalds skv. samþykktum vatnsveitudeildar.

 

9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra: 


a) Snjómokstur. Yfirferð


b) Girðingarvinna. Lagt er til að félagið standi að viðgerð á girðingu á vesturenda sumarlandsins. Frá vegi upp að fjallskila girðingu


c) Vatnsból:  Lagt er til að vatnsbólin verði hreinsuð og yfirfarin og girðingar endurbyggðar.


d) Göngustígar, girðinga stigar og brýr. Lagt er til að félagið setji sér langtímamarkmið við að viðhalda girðingastigum, göngstígum og brúm yfir skurði.


e) Nýr kurlari.


f) Ljósleiðari


g) Brenna um Verslunarmannahelgi 


10. Önnur mál. 


Vinsamlegast athugið að fundurinn er jafnframt aðalfundur vatnsveitudeildar félagsins. Málefni vatnsveitu deildar verða tekin fyrir undir viðeigandi liðum á dagskránni í samræmi við samþykktir deildarinnar.

 

Nánar á vef félagsins http://mulabyggd.blogspot.com

 

Stjórnin

02 June 2021

Fundarboð - Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð 15. júní 2021

 Aðalfundarboð 2021

Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð verður haldinn þriðjudaginn 15. júní næstkomandi, kl 20.00.
Fundarstaðurinn er í safnaðarheimili Bústaðakirkju, gengið inn frá Bústaðavegi
Vonumst til að sjá sem flesta í eigin persónu í þetta skipti :o)
Dagskrá verður kynnt á á næstu dögum.

Stjórnin,