17 March 2014

Samningur undirritaður 17.mars (úreltur)

Ágætu félagsmenn,
í dag undirritaði Guðni meðfylgjandi samning um yfirtöku félagsins á rekstri
vatnsveitu, vega og girðinga. Samkvæmt honum lækkar lóðarleiga um 27.500, en í
óstaðfestu samkomulagi frá í júní 2013 var sú upphæð 22.500 og í þeim drögum
sem send voru með framhaldsaðalfundarboði var hún 40.000 krónur. Jafnframt
skuldbindur landeigandi sig til að gera nýja samsvarandi lóðarleigusamninga í
stað þeirra sem renna út 2010-2015. 

Samningurinn verður borinn upp til staðfestingar á framhaldsaðalfundi annað
kvöld og eru allir félagsmenn eindregið hvattir til að mæta.

Með kveðju,
formaður



07 March 2014

Boðun framhaldsaðalfundar 2013 (sent 4.mars 2014)

Ágætu félagsmenn

boðað er til framhaldsaðalfundar í Félagi bústaðaeigenda Múlabyggð í samræmi við ákvörðun aðalfundar í júní 2013.

Tími: þriðjudaginn 18. mars 2014 kl.20:00
Staður: Stórhöfða 31, sal Rafiðnaðarsambandsins (gengið inn að neðanverðu við húsið)

Dagskrá:

1. Kynning á vatnsmálumgirðingamálum og vegamálum.

2. Lagabreytingar, sjá tillögu stjórnar í viðhengi.

3. Nánari samningur við landeiganda um yfirtöku vatnsveitu, girðinga og vega. Sjá DRÖG að samningi í viðhengi, sem fundað verður um með landeiganda 17. mars.


Nánari upplýsingar, m.a. frá aðalfundinum er að finna á vefnum http://mulabyggd.blogspot.com

F.h. stjórnar
Þorvarður Kári Ólafsson
formaður

04 March 2014

Staða vatnsveitumála í Múlabyggð

Samantekt stjórnar Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð
5. febrúar 2014

Inngangur

Í skýrslu þessari er staða vatnsveitunnar í Múlabyggð reifuð eins og hún blasir við stjórn Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð veturinn 2013/2014.  Frá síðastliðnu sumri (2013) hafa stjórnarmeðlimir kynnt sér vatnsveituna eftir bestu getu og gert ákveðnar úrbætur svo meta megi vatnsgæfni vatnsbólanna eins og þau eru virkjuð í dag.  Einnig hafa verið tekin sýni til að meta heilnæmi vatnsins og settir lofttæmilokar sem tilraun til að bæta úr tregðu í vatnsrennsli á vestara svæði. 
Í stjórn sitja þegar þessi skýrsla er skrifuð:

Þorvarður Kári Ólafsson, formaður (nr. 19)
Björn Gunnarsson, gjaldkeri (nr. 10)
Guðrún Svanborg Hauksdóttir, ritari (nr. 36)
Pétur Kristinsson (nr. 17, 18, 20)
Sigmundur Andrésson (nr. 24)
Varamenn:
Haraldur Jónsson (nr. 13)
Hildur Ingvarsdóttir (nr. 33,34)

Upplýsingar í skýrslunni byggja m.a. á fyrirliggjandi uppdráttum, upplýsingum frá Guðna, ábendingum frá Guðmundi Brynjúlfssyni pípulagningamanni, bréfum Heilbrigðiseftirlits Vesturlands o.fl.,

1. Vatnsbólin og tilheyrandi veitur

Vatnsbólin og tilheyrandi veitur sem hér verður fjallað um eru tvö og nefnum við þau vestara og eystra vatnsból/veitu    Ekki er fjallað um vatnsveitu sem fyrrum Eimskipafélagsbústaðir nýta.

Eystra vatnsból og veita

Eystra vatnsbólið þjónar lóðum 22-37.    Frá vatnsbólinu liggur 63 mm lögn og svo tveir stofnar út frá henni eins og sést á teikningu (rissað eftir leiðbeiningum í vettvangsferð með Guðna sumarið 2013).

Vatnssöfnun fer fram á svæði sem girt var árið 2010 (að sögn Guðna). Umhverfis tunnur er hraunpúkk og virkar hraunpúkkið sem svelgur eins og staðan er í dag.  Slíkur svelgur er góður til þess að drýgja vatnið en getur hins vegar spillt því um leiðÞar sem hraunið er óvarið á t.d. fuglaskítur greiða leið niður í neysluvatnið með tilheyrandi mengun (sjá nánar um nauðsynlegar úrbætur til að tryggja heilnæmi vatns neðar).

Myndir. Eystra vatnsból og svæðið fyrir neðan. Ljósmyndir úr vettvangsferð sumarið 2013:

Úrtakspípan úr vatnsbólinu er mjög ofarlega og svo er henni framlengt niður í tunnuna.  Guðmundur Brynjúlfsson benti í vettvangsskoðun í sumar á að þessi lykkja sé ávísun á vandræði því þarna getur auðveldlega safnast fyrir loft sem virkar eins og tappi í rörinu.  Guðni segir ástæðu þessarar útfærslu hafa verið klapparhaft í skurðinum.  Guðmundur hefur bent á að hann telji að færa þurfi úrtakið mun neðar til þess að þetta virki almennilega.  Auk þess stingst upp úr vatninu loki sem sé ekki heppilegt.

Myndir. Úrtakspípa í eystra vatnsbóli:


Safntankur eystra svæðisins tekur 4500 lítra en að sögn Guðna má gera ráð fyrir nokkur þúsund lítrum að auki í vatnstökusvæðinu sjálfu (hraun er umhverfis tunnur eins og fram kemur að ofan).    Bláa tunnan að neðan (sjá einnig á efstu mynd hæra megin) er í raun op niður að vatnsgeymi sem er án yfirfalls.  Þetta er viljandi gert að sögn Guðna til þess að nýta fallhæð frá vatnsbólinu og einnig þann forða sem í því er.  Vatnsgeymirinn er alveg lokaður og því eins og hluti af "rörinu", og uppúr honum krani til þess að hleypa af lofti. 

Myndir. Safntankur á vestara vatnsbóli er undir þrýstingi.  Á því er lofttæmiloki (einvirkur). Ljósmyndir úr vettvangsferð sumarið 2013: 


Myndir. Loki á vatnslögn frá safntanki eystra svæðis.  Þarna má loka fyrir rennsli frá vatnsbólinu:

Vestara vatnsból og veita

Vestara vatnsbólið þjónar lóðum 3-21.  Helstu stofnar sjást á myndinni að neðan.


Vatnsból vestara svæðis er afgirt.  Þar eru tvær tunnur, sú efri frá 1986 (að sögn Guðna) en sú neðri var sett eitthvað síðar.  Guðni segist þrífa tunnurnar annað hvert ár því þar myndast gróður.  Í kringum hvora tunnu er drengrjót, sennilega um 1/2 meter út frá hvorri tunnu.

Mynd. Vestara vatnsból:

 Myndir: Séð ofan í efri tunnuna í vestara vatnsbóli.

Úr vestara vatnsbóli rennur vatn um 100 mm lögn í tank frá 1986 og úr honum í nýjan tank, þ.e. ef vatnsnotkun er þannig að lækkar í eldri tanki.  Annars stendur vatnið kyrrt í nýrri tankinum. 

Mynd. Virkni tankakerfis vestara vatnsbóls (skv. útskýringum Guðna):

Myndir. Horft niður í eldri tanka á vestara svæði í vettvangsferð sumarið 2013:


Myndir. Séð ofan á og niður í nýja tankinn á vestara svæðinu:


Myndir. Fyrir neðan vatnstanka vestara svæðis er brunnur með 4 krönum þar sem loka má fyrir vatn frá vatnsbólinu.  Á myndinni til hægri má sjá áætlað staðsetningu yfirfalls frá tönkum vestara svæðisins.  Grafið var frá því í sumar til að mæla rennsli:


2. Heilnæmi vatns og starfsleyfi

Vatnsveita Múlabyggðar hefur ekki starfsleyfi.  Árið 2007 óskaði Guðni eftir úttekt Heilbrigðiseftirlits Vesturlands (HeV) vegna deiliskipulags sem þá var í vinnslu sem gerði ráð fyrir mun meiri og vatnsfrekari byggð á svæðinu en nú er (stærri sumarhús, hesthús, bílskúrar o.s.frv.).  Veitunni var þá synjað um starfsleyfi og hefur ekki öðlast það síðan.  Hér verður sagan rakin í grófum dráttum hvað varðar aðgerðir Heilbrigðiseftirlits Vesturlands (HeV) og félagsins.

24. maí 2007       Heilbrigðisfulltrúi sendir Guðna bréf um niðurstöðu úttektar á vatnsveitunni.  Þar er ástand vatnsveitunnar reifað og endar bréfið með því að segja:
                               ,,Heilbrigðiseftirlit Vesturlands getur ekki að óbreyttu gefið út starfsleyfi fyrir vatnsbólin sem þjóna frístundabyggðinni í Múlabyggð og varar eindregið við beinni neyslu þess þar til fullkomnar endurbætur hafa átt sér stað.  Þess ber að geta að eigandi vatnsveitu er ábyrgur fyrir gæðum vatnsins og ber jafnframt að greina neytendum frá erfiðleikum sem kunna að koma upp vegna gæða vatnsins“.
Ekki er vitað til þess að Guðni hafi látið vita um þess niðurstöðu en sumarhúsaeigandi frétti af þessu fyrir tilviljun frá framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og sendi þá félagið þær upplýsingar til félagsmanna.
12. júní 2008      Sveinn Guðmundsson (hrl) sendir Guðna bréf fyrir hönd sumarhúsaeigenda þar sem Guðna er gefinn lokafrestur til 1. júlí til þess að efna loforð sín um úrbætur á vatnsveitu.
23. okt 2008       Sveinn Guðmundsson (hrl) sendir bréf þar sem hann segir Guðna ekki hafa gert neinar úrbætur og málinu verði skotið til opinberra aðila til úrlausnar.
21. apríl 2009     HeV sendir Guðna bréf þar sem vísað er í bréf dags. 24. maí 2007 þar sem gerðar voru athugasemdir við vatnsbólin tvö.  Í bréfinu telur HeV Guðna ekki hafa orðið við kröfu HeV um endurbætur á vatnsbólunum.  Þá hafi ekki verið sótt um starfsleyfi fyrir vatnsbólin þrátt fyrir að þau þjóni langtum fleiri en 20 frístundahúsum.  Í bréfinu er Guðna tilkynnt samþykkt frá fundi heilbrigðisnefndar Vesturlands fyrr um vorið en þar segir: ,,Eiganda vatnsbóla skal sækja um starfsleyfi til heilbrigðisnefndar Vesturlands fyrir 10. maí n.k. að viðlagðri formlegri áminningu.  Jafnframt skal hann ganga þannig frá vatnsbólum að þau verði ekki fyrir yfirborðsmengun“.
16. júlí 2009        HeV sendir Guðna bréf þar sem vitnað er í bréfið frá 21. apríl og sagt að erindinu hafi ekki verið svarað.  Málið hafi verið tekið fyrir á stjórnarfundi heilbrigðisnefndar Vesturlands hinn 13. maí og samþykkt að veita honum formlega áminningu.  Honum er þá gefinn lokafrestur til að sækja um starfsleyfi fyrir vatnsból Múlabyggðar ásamt gögnum sem skýra gerð þess og hönnun.  Þar segir: ,,Verði ekki orðið við kröfu þessari fyrir 1. ágúst 2009 mun málið tekið fyrir í heilbrigðisnefnd með skírskotun til þvingunarúrræða í VI. kafla lagna nr. 7/1998...“.
6. okt 2009          HeV berst bréf þennan dag frá Guðna sem dagsett er 11.maí 2009 þar sem Guðni upplýsir að á árinu 2008 hafi verið gerðar endurbætur á vatnsveitunni m.a. sett niður safnþró, tankar hreinsaðir o.fl.  Þá kemur fram í bréfi Guðna að ,,það skal tekið fram að ekki er vitað til þess að yfirborðsmengun sé í vatnsbólum á Grímsstöðum en þegar sýni hafa verið tekin hefur ekkert bent til þess“.  Í tölvupósti frá HeV  til formanns félagsins í kjölfar móttöku bréfsins og fundar með Guðna kemur fram að skv. upplýsingum frá Guðna hafi bæði vatnsbólin sem þjóna Múlabyggð verið lagfærð frá því formleg úttekt fór fram vorið 2007.  Brunnar hafi verið þrifnir og sótthreinsaðir og nýr 3600 l safngeymir settur niður við Bjarnhóla árið 2008.  Þá hafi verið settur niður 4500 l safngeymir við vatnsbólið árið 2009.  HeV tekur þó fram að ekki sé búið að girða af vatnsbólið og engar sýnatökur hafi farið fram.
16. júlí 2010        HeV lætur taka sýni úr loftkrana í brunni rétt fyrir neðan  safnbrunna á eystra svæði.
20. júlí 2010        Framkvæmdastjóri HeV hefur samband við Guðna símleiðis og tjáir honum niðurstöðu sýnatöku.  Í sýninu var að finna 11 kólígerða og 11 e-coli gerla auk þess sem gerlafjöldi við 22°C var hár (320).  Þar fór framkvæmdastjóri HeV fram á við Guðna að hann varaði neytendur við vatninu.
22. júlí 2010        Framkvæmdastjóri HeV kemur á svæðið og kemst að því að eigendur hafa ekki verið varaðir við.
23. júlí 2010        HeV sendir Guðna bréf þar sem fram koma niðurstöður sýnatöku þann 16. júlí.   Þar segir m.a.:  ,,þegar kólígerlar  finnast í vatni bendi allt til þess að yfirborðsvatn hafi komist í vatnsból og þá er hætta á saurmengun og mengun af völdum annarra gerla og örvera sem geta valdið sjúkdómum“.    Þá segir hann að: ,,með því að tilkynna ekki neytendum vatns um þær hættur sem séu samfara því að neyta vatnsins hafir þú gróflega brotið ákvæði neysluvatnsreglugerðar og matvælalaga nr. 93/1995.“  HeV fer fram á það við Guðna að vatnsbólum sem þjóni Múlabyggð verði lokað þegar í stað og ekki opnuð á ný fyrr en gerðar hafi verið ráðstafanir til að tryggja gæði vatnsins og að formleg úttekt hafi farið fram af hálfu heilbrigðisfulltrúa.
                               Sama dag sendir formaður félagsins bústaðaeigendum aðvörun.
1.9.2013               Stjórnarmaður tekur sýni úr krönum húsa á vestara og eystra svæði og sendir í rannsókn hjá Sýni hf.  Farið var eftir öllum reglum um sýnatöku (sótthreinsuð glös, kranar sótthreinsaðir, vatn látið renna lengi á undan, sýnum haldið köldum og komið í greiningu innan sólarhrings).
6.9.2013               Niðurstöður sýnatöku liggja fyrir (sjá aftast í þessari skýrslu).  Sýnið á vestara svæðinu reynist vera í lagi með tilliti til neysluvatnsreglugerðar (reglugerð 536/2001) en í sýninu af austara svæðinu var heildargerlafjöldi yfir mörkum (152 /ml en viðmiðið er 100) og kólígerlafjöldi sömuleiðis (33/100 ml en viðmiðið er 0/100 ml).   Enginn kólígerill mældist í sýninu af vestara svæðinu en örverur voru 82/ml.  Formaður félagsins sendir í kjölfarið tölvupóst til sumarhúsaeigenda með niðurstöðum sýnatöku þar sem varað var við neyslu og minnt á að veitan hafi ekki starfsleyfi.

Þess ber að lokum að geta að í spurningakönnun sem send var félagsmönnum  í ágúst 2013 þar sem spurt var um ýmislegt sem tengist vatnsveitunni í Múlabyggð svaraði eigandi bústaðar á austara svæði að fyrir lægi sterkur grunur um sýkingu af völdum sníkjudýrsins Cryptosporidium hjá tveimur barna hans eftir neyslu vatns úr eystra vatnsbóli.

3. Lágmarksúrbætur til að tryggja heilnæmi vatns

Það er ljóst að frá vorinu 2007 hafa verið gerðar ákveðnar úrbætur við vatnsbólin í Múlabyggð eins og kemur fram í kaflanum að ofan.  Til að mynda hefur verið bætt við safntönkum og næsta umhverfi safntunna (vatnsbóls) hefur verið girt af.  Þó eru enn ýmsir gallar við frágang tanka og búnaðar sem gerir það að verkum að heilnæmt vatn verður ekki tryggt.   Algjörar lágmarksaðgerðir til þess að auka líkur á heilnæmu vatni telur stjórn félagsins vera eftirfarandi:

Eystra vatnsból

Setja þyrfti plastdúk yfir púkkið og hækka tunnur yfir vatnsbólinu.  Þá þyrfti að setja þéttan jarðveg amk. 2 metra út fyrir tunnur í allar áttir og tyrfa yfirborð.  Best er að láta yfirborðið halla aðeins á rásum sem þá mynduðust beggja vegna tunnunnar.  Þessar rásir myndu síðan gegna hlutverki farvegs yfirborðsvatns sem getur orðið talsvert í leysingum, en eins og þetta er núna virkar hraunpúkkið sem svelgur.  Slíkur svelgur er góður til þess að drýgja vatnið en spillir því því miður um leið.  Það þarf ekki nema eitt fuglsdrit ofan á hraunpúkkið sem svo skilar sér niður í vatnstökuna með rigningarvatni til þess að skapa mengun í vatnsbólinu.

Vestara vatnsból

Raðtengja þyrfti safntankana tvo til þess að tryggja endurnýjun vatnsins.  Í dag er fyrirkomulagið þannig að tankurinn sem settur var árið 2007 er tengdur til hliðar og verða vatnsskipti í honum afar takmörkuð þegar vatnsnotkun er lítil.  Því getur sama vatnið staðið þar lengi.  Þá er nauðsynlegt að hylja hann frá sólarljósi.   Auk þess þarf að hækka neðri tunnuna á vatnstökusvæði því inn í hana kemst auðveldlega yfirborðsvatn eins og er (sjá mynd til hliðar). 


4. Vatnsleysi og vatnamælingar

Sumarhúsaeigendur í Múlabyggð hafa margir glímt við vatnsleysi undanfarin ár.  Margar kenningar hafa verið um vatnsleysið og mismunandi skoðanir bæði félagsmanna og Guðna.  Bent hefur verið á eftirfarandi möguleika:
  • -          Vatnsbólin sem nýtt eru gefi ekki nóg
  • -          Sumarhúsaeigendur ofnoti vatn
  • -          Lekar séu í kerfinu
  • -          Lekar séu á heimæðum
  • -          Lega stofnlagna eða heimæða sé þannig að loft safnist fyrir sem hamli rennsli
Árið 2013 var tvennt gert til þess að reyna að átta sig á vandanum; annars vegar að kortleggja vatnsleysið og hins vegar að hefja vatnamælingar úr vatnsbólum.

Kortlagning vatnsleysis

Í ágúst 2013 var send út spurningakönnun til sumarbústaðaeigenda í Múlabyggð þar sem spurt var um ýmsa þætti er varða neysluvatn.  Svarhlutfall var 65%.  Ein spurningin hljóðaði svo:  ,,Hefur orðið vart við vatnsleysi í þínum bústað“ (svar: já eða nei).  Að neðan má sjá hvar vitað er að hafi orðið vart við vatnsleysi og hverjir segjast ekki hafa orðið varir við það.  Niðurstaðan byggir alfarið á könnuninni nema fyrir lóðir 17, 21 og 28 en þar vita stjórnarmenn til þess að eigendur hafi glímt við vatnsleysi.
Algengasta svarið við spurningunni hvenær fólk glímdi við vatnsleysi var: ,,þurrkatíð á sumrin“ og virðist sumarið 2012 hafa verið einkar slæmt á báðum svæðum.  Sumarið 2013 varð vart við vatnleysi á vestara svæðinu (um og upp úr verslunarmannahelgi) en ekki varð vatnslaust á austursvæði svo vitað sé. 

Vatnamælingar

Stjórn félagsins ákvað í sumar að finna leiðir til þess að mæla rennsli úr vatnsbólunum.  Það var gert með eftirfarandi hætti:
Á vestara svæði var grafið frá yfirfalli í skurði og vatnamæling framkvæmd með því að láta vatnið þar renna í fötu og tíminn tekinn sem tók fötuna að fyllast.  Áður en það var gert var lokað fyrir krana í kranakistu til þess að loka fyrir rennsli vatns inn í kerfið (frá vatnsbóli).  Þannig ætti vatnið sem fer á yfirfall hverju sinni að svara til þess vatns sem rennur inn í vatnsbólið.  Nokkrar mælingar voru gerðar haustið 2013 og má sjá niðurstöður þeirra á grafinu á næstu síðu.


Á austara svæði er ekki yfirfall á vatnsbólinu enda er safntankurinn þar undir þrýstingi.  Því var farið í þá aðgerð að koma krana á tankinn og um leið var settur tvívirkur lofttæmiloki sem ætti að gera kerfinu gott.  Vatnamæling var svo framkvæmd á eftirfarandi hátt:  skrúfað var fyrir krana í brunni fyrir neðan safntank til að ekkert rynni til bústaða.  Því næst var skrúfað frá krana á safntanki og fundin sú buna sem varð til þess að yfirborð í tunnu í vatnbóli hélst stöðugt.  Aðeins hefur verið framkvæmd ein slík mæling og má sjá niðurstöðu hennar á grafinu að neðan.
 
Myndir. Við vatnamælingar á eystra vatnsbóli í haust:


Eins og sést virðist núverandi vatnsból á vestara svæði bjóða upp á lítið  vatn og þarf því ekki mikla notkun til þess að vatnsbirgðir klárist án þess að nóg bætist í (sbr. vatnsleysi um verslunarmannahelgi síðastliðið sumar) Þá er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að afla meira vatns en vatnsbólið gefur í það minnsta ekki nóg eins og það er í dag.  Minni reynsla er komin á mælingar á austara vatnsbóli en mælingum verður framhaldið á báðum stöðum á næstunni og liggur því vonandi skýrari mynd fyrir í vor.  Það er þó ljóst að fyrstu mælingar gefa ekki tilefni til mikillar bjartsýni og benda þær jafnframt til þess að ,,lekum lögnum bústaðaeigenda“ eða ,,ofnotkun“ verði ekki einum um kennt.

5. Framkvæmdir 2013

Haustið 2013 var farið í eftirfarandi framkvæmdir sem Félag bústaðaeigenda í Múlabyggð hefur staðið straum af:

1. Austara svæði.
Komið var fyrir t-stykki með krana og tvívirkum lofttæmiloka á safntankinn á eystra vatnsbólinu til þess að hægt væri að meta rennsli úr því og minnka möguleg loftvandamál.  Einnig var sett steinull til þess að einangra viðkomandi brunn sem og næsta brunn fyrir neðan. 

2. Vestara svæði
Farið var í ,,lofttæmiaðgerðir“ til að reyna að bæta rennsli á vestursvæði.  Pétur og Haraldur grófu í haust niður á vatnslögnina inni á lóð hjá Pétri.  Þrýstingur hjá Haraldi og Pétri jókst við þetta og einnig kom vatn hjá Braga sem hafði verið vatnslaus.  Aðgerðin skilaði hins vegar  ekki vatni hjá Engilbert.   Haraldur og Engilbert gengu um lóð hans og áætluðu hvar aðalvatnslögnin á hans lóð lægi og hallamældi lóðina.  Skv. því virtist vera pokalögn inni á lóðinni hjá honum og sennilega önnur þar sem lögnin fer í gegnum veginn.  Í september fóru Björn og Haraldur tvær helgar í röð og grófu inni á lóðinni hjá Engilberti og reyndu að grafa niður á lögnina, þar sem Guðni taldi að hún ætti að vera. Þar er skarð og hjólför í gegnum trjágróðurinn og þar ætti lögnin að liggja hæst, inn á lóð Engilberts. Engilbert var með þeim í seinna skiptið. Þeir fundu ekki lögnina þrátt fyrir gríðarstóra og djúpa holu. Mikill vatnselgur var í holunni og meira en meters dýpi þegar ekki var ausið. Í seinna skiptið var leigð vatnsdæla.  Í október var fengin grafa til að leita að vatnslögninni inni á lóðinni hjá Engilbert . Engilbert var með Haraldi og létu þeir grafa tvær tilraunaholur til að finna lögnina og að lokum þá þriðju inni í trjágróðri  við hlið holunnar sem Haraldur og Björn höfðu grafið og fannst þar lögnin. Sett var lofttöppun á lögnina en það kom ekki mikið loft en þegar  Haraldur lét renn a eftir að búnaðurinn var kominn upp, kom talsvart loft með vatninu. Þessi aðgerð lagaði ekki vatnsleysið hjá Engilbert en hjá Haraldi kominn allgóður þrýstingur.

Þá hefur Haraldur keypt tvær samsetningamúffur fyrir 63 mm lögn, þannig að ef óhapp verður á aðallögnum er til búnaður til viðgerða.






Ástand girðinga í Múlabyggð – minnisblað stjórnar febrúar 2014

Flestar girðingar eru orðnar nokkuð gamlar. Girðing frá Sólvöllum austur að og með lóð 3 er frá þeim tíma sem lóðarhafar girtu sínar lóðir sjálfir. Hún er í sæmilegu standi fyrir utan kafla neðan við lóð 21, þar sem staurar hafa lyfst í frostlyftingu og er ekki fjárheld þar.
Frá þeim stað og austur að og með lóð 37 er girðing sem Guðni girti og hefur átt að sjá um. Hún hefur legið niðri á kafla neðan við lóðir 24,26 og 27 vegna frostlyftingar en Guðni virðist hafa reist hana við í fyrra, en það er væntanlega ekki varanleg aðgerð.
Fyrir austan lóðir 35,36 og 37 er skógræktarsvæði sem Guðni á og sér um. Svæðið er afgirt nema að ekki er girt á milli svæðisins og sumarhúsabyggðarinnar.Meðfram veginum liggur girðingin yfir tvo skurði(Læki) og er ekki fjárheld þar.
Vestan við svæðið er girðing sem aðskilur svæðið og beitarhólf. Þessa girðingu þarf að ræða við Guðna.
Ofan við allt svæðið er fjallskilagirðing sem er í eigu og á ábyrgð Borgarbyggðar (Fjallskilanefndar).


Tillaga stjórnar að lagabreytingu á framhaldsaðalfundi 2013 (18.mars 2014) ÚRELT

I. 4.grein laganna fjallar um hlutverk félagsins. Lagt er til að síðasti liður hennar (sem í eldri lögum fjallar um samskipta- og umgengnisreglur) hljóði svo:
            4. Að taka ákvarðanir um verkefni samkvæmt 19.gr. laga um frístundabyggð.

II. Lagt er til að 5.grein laganna (sem í eldri lögum fjallar um tilgang félagsins) hljóði svo:
5.gr Sameiginlegar veitur
Ákveði aðalfundur að reka sameiginlega aðveitu eða fráveitu skulu gerðar skriflegar samþykktir um þann rekstur og honum haldið aðskildum frá almennum rekstri félagsins.


Rök fyrir lagabreytingunum:
Megintilgangur þessara breytinga er að í lögunum sé skýr heimild til þess að félagið megi reka vatnsveitu og sjá um viðhald vega og girðinga. Til að raska ekki númerum lagagreina eru tekin út óþarfa ákvæði, sem eru innifalin í öðrum ákvæðum og lögum um frístundabyggð.



Stjórn félagsins

Boðun framhaldsaðalfundar 2013

Ágætu félagsmenn

boðað er til framhaldsaðalfundar í Félagi bústaðaeigenda Múlabyggð í samræmi við ákvörðun aðalfundar í júní 2013.

Tími: þriðjudaginn 18. mars 2014 kl.20:00
Staður: Stórhöfða 31, sal Rafiðnaðarsambandsins (gengið inn að neðanverðu við húsið)

Dagskrá:

1. Kynning á vatnsmálum, girðingamálum og vegamálum. Skýrslur verða sendar í sér tölvupósti (3MB að stærð). Vinsamlegast látið vita ef þær berast ekki innan sólarhrings.

2. Lagabreytingar, sjá tillögu stjórnar í viðhengi.

3. Nánari samningur við landeiganda um yfirtöku vatnsveitu, girðinga og vega. Sjá DRÖG að samningi í viðhengi, sem fundað verður um með landeiganda 10. mars.


Nánari upplýsingar, m.a. frá aðalfundinum er að finna á vefnum http://mulabyggd.blogspot.com

F.h. stjórnar
Þorvarður Kári Ólafsson
formaður