13 November 2011

Umgengnisreglur samþykktar

Félag sumarhúsaeigenda í Múlabyggð
Umgengnisreglur samþykktar á aðalfundi 2011
  1. Almennt:
Sumarhúsaeigendur og gestir þeirra skulu gæta þess að ganga vel um sumarhúsasvæðið í Múlabyggð. Íbúar og gestir þeirra skulu ekki skilja eftir rusl á víðavangi og ekki valda spjöllum á gróðri. Ennfremur skal forðast að valda öðrum íbúum ónæði með hávaða.
  1. Ljós og gróður:
Öll útilýsing skal höfð í lágmarki og útiljósum beint niður á við til að koma í veg fyrir ljósmengun. Kappkosta skal að halda vexti trjáa í því horfi að ekki skerði útsýni á sumarhúsasvæðinu.
  1. Notkun vatns:
Sumarhúsaeigendur skulu gæta þess að kranar, lagnir og búnaður fyrir kalt neysluvatn sé ávallt í lagi frá stofnlögnum og að húsum þeirra. Vökvun lóða og gróðurs á lóðum og áfylling í heita potta er bönnuð á álagstímum þegar vatnsöflun er ekki næg. Gæta skal þess að vatnskranar og tengibúnaður við lóðamörk séu rétt meðhöndlaðir, þannig að veitukerfið tæmist ekki af þeim sökum.
  1. Þungaflutningar í hverfunum:
Verði lóðarhafi í Múlabyggð valdur að skemmdum á vegum í sumarhúsabyggðinni vegna þungaflutninga og/eða framkvæmda, þá skal hann bæta það tjón að fullu og sjá til þess á sinn kostnað, að vegirnir verði lagfærðir í sama horf og þeir voru fyrir tjónið.
  1. Meðferð elds :
Meðferð opins elds er bönnuð á sumarhúsasvæðinu. Eld má einungis tendra í þar til gerðum útigrillum og útiarinstæðum og ávallt skal gæta fyllstu varkárni og öryggis við meðferð elds í slíkum búnaði.
  1. Dýrahald:
Lausaganga dýra er óheimil á sumarhúsasvæðinu. Þó er heimilt að halda dýr innan eigin lóðar.
  1. Birting þessara reglna:
Eigendur skulu kynna þessar reglur fyrir gestium sínum.

Aðalfundur félags bústaðaeigenda í Múlabyggð 2011


Aðalfundur félags bústaðaeigenda í Múlabyggð 2011 haldinn 6. september 2011 kl. 20
Fundarstaður: Stórhöfði 31, húsnæði Rafiðnaðarsambandsins.
Fundur settur
     Fundarstjóri var valinn Þorvarður Kári Ólafsson.
     Fundarritari var valin Kristín Anna Stefánsdóttir.
     Mættir voru fulltrúar 20 lóða.

1. Skýrsla stjórnar
Þorvarður formaður flutti skýrslu stjórnar:
Ný stjórn Félags bústaðaeigenda Múlabyggð tók við í apríl 2010. Stjórnin hélt þrjá fundi á árinu og auk þess einn með lögfræðingi LSSH.
Í vatnsmálum bar það til tíðinda að heilbrigðiseftirlit Vesturlands fyrirskipaði lokun vatnsveitunnar í júlí 2010, eftir að kólígerlar mældust í vatnsbólinu og komst málið í fjölmiðla. Reyndar hefur enn ekki orðið af þessari fyrirskipuðu lokun, en landeigandi réðist í einhverjar lágmarksúrbætur (girti og læsti lokum). Ekki er vitað hver gæði vatnsins eru í dag og er fólki því enn ráðlagt að sjóða allt neysluvatn.  Í sumar sem leið bar síðan á verulegum vatnsskorti og berast böndin að lagnakerfi vatnsveitunnar, sem virðist fyllast af lofti í þurrkatíð, en mjög erfitt hefur reynst að komast til botns í þeim vanda. Stjórnin hefur fundað um vatnsmálin með lögfræðingi LSSH, og hann skrifaði bréf til heilbrigðseftilitsins og umhverfisstofnunar í júlí sl., en þau hafa engin viðbrögð sýnt enn.
Girðingamál og vegamál hafa einnig verið til umfjöllunar hjá stjórn og eru þau nú í nánari skoðun hjá lögfræðingi LSSH. Lögfræðingurinn mun síðar á fundinum skýra betur út þau úrræði sem við höfum í þessum helstu þremur hjartans málum félagsmanna (vantsmálum, girðingamálum og vegamálum).
Auk þessara hefðbundnu baráttumála félagsins hafa umgengnismálin einnig verið til umfjöllunar og liggur nú fyrir tillaga að umgengnisreglum sem verða bornar undir atkvæði hér á eftir.
Í stuttum umræðum um skýrsluna var m.a. haft eftir heilbrigðisfulltrúa að hann hyggist taka sýni úr vatnsbólinu í haust. Einnig kom fram að vegurinn meðfram hverfinu er óviðunandi í alla staði.

2. Reikningar félagsins
Björn Gunnarsson gjaldkeri gerði grein fyrir ársreikningi félagsins, sem kjörnir skoðunarmenn reikninga höfðu endurskoðað. Hann var samþykktur einróma.

3. Kosning formanns
Þorvarður Kári Ólafsson (nr.19) gaf áfram kost á sér og var endurkjörinn formaður.

4. Kosning annarra stjórnarmanna
Björn Gunnarsson (nr.10), Haraldur Jónsson (nr.13), Pétur Kristinsson (nr.18.20,17) og Sigmundur Andrésson (nr.24) gáfu áfram kost á sér og voru allir endurkjörnir í stjórn.

5. Kosning varamanna í stjórn
Í varastjórn voru kjörnir þeir Ari Hauksson (nr.30) og Ágúst Sigurðsson (nr.31,32).

6. Kosning skoðunarmanna
Hjalti Schiöth (nr.25) og Hildur Ingvarsdóttir (nr.4) voru endurkjörin skoðunarmenn ársreikninga og Aldís Norðfjörð (nr.30) til vara.

7. Áætlun næsta árs
Starfið framundan snýst um að skýra lagalega stöðu félagsins í helstu málum og fylgja henni eftir. Ef til framkvæmda kemur þarf að taka ákvörðun um þær á fundi.

8. Ákvörðun um árgjald
Samþykkt einróma að gjaldið verði óbreytt, 5000 krónur.

9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði
Fyrir fundinum lá tillaga stjórnar að umgengisreglum í 8 greinum. Greinarnar voru ræddar hver fyrir sig:
1.gr. var samþykkt óbreytt.
2.gr: síðasta setning var felld brott.
3.gr. var felld brott.
4.gr: fyrirsögn breytt í “Notkun vatns”, "þegar vatnsöflun er ekki næg" kemur í stað "þar sem vatnsgeymar hvers svæðis tæmast fljótt við slíka vatnsnotkun" og síðasta setning var felld brott.
5.gr. var samþykkt óbreytt.
6.gr: “svo og meðferð flugelda” var fellt brott.
7.gr: “þ.m.t.  hunda, katta og annarra gæludýra” var fellt brott og bætt við “Þó er heimilt að halda dýr innan eigin lóðar”.
8.gr. hljóði svo: “Eigendur skulu kynna reglur þessar fyrir gestum sínum”.
Þannig breyttar voru umgengnisreglurnar samþykktar.

10. Önnur mál
Sveinn Guðmundsson, lögfræðingur LSSH var mættur á fundinn til að ræða við félagsmenn réttarstöðu og úrræði varðandi helstu baráttumál félagsins, sem eru vatnsmál, girðingamál og vegamál.
Vatnsveitumálin: Baráttan byrjaði árið 2007 með tilheyrandi bréfaskrifum og fundarsetum. Mjög erfitt virðist vera að þoka þessum málum þó talað sé hafi verið margoft við heilbrigðisnefnd og aðra. Hægt er að beita dagsektum og nú er málið komið á það stig að kæra þarf heilbrigðisnefnd vegna aðgerðaleysis. Sveinn ætlar að sjá um að gera það á næstu vikum.
Vegakerfið: Sveinn segir vegagerðina ekki gera neitt við veginn hjá okkur, okkar vegur er C-vegur og það er landeiganda að sjá um veginn ásamt þeim sem nota hann til að komast að Grenjum og Langá og upp í Grenjadal. Sveinn er að kanna möguleika á að fá veginn skilgreindan sem sveitarfélagsveg vegna fjölbreyttrar notkunar hans. Stjórn fær skýrslu um þá athugun innan mánaðar.
Girðingamál: Samkvæmt nýjum lögum skal landeigandi girða sinn úthring til að koma í veg fyrir að dýr hans fari inn á land annarra. Ef hann sinnir því ekki megum við girða sjálf á kostnað hans, að undangengnum formlegum tilkynningum og frestum.
Að lokum fór Sveinn yfir hvernig standa þurfi að málum þegar leigusamningar eru að renna út.

Fundi slitið 22:10

05 September 2011

Aðalfundargerð 2010


Aðalfundur félags bústaðareigenda Múlabyggð, haldinn 20. apríl 2010 kl. 20
Fundarstaður: Stórhöfði 31, húsnæði Rafiðnaðarsambandsins og fleiri.
Fundarritari: Kristín Anna Stefánsdóttir, ritari stjórnar

1.         Skýrsla stjórnar
Snorri formaður sagði frá helstu störfum stjórnar á liðnu starfsári. Í vegamálum gerðist það  að stjórnin skrifaði Borgarbyggð og fékk frekar neikvætt svar sem lesa má á vef félagsins. Í vatnsmálum hefur það helst borið til tíðinda að heilbrigðisfulltrúi Vesturlands skrifaði landeiganda bréf, en ekkert hefur enn komið út úr því. Varðandi girðingarmálin þá sendi stjórnin landeiganda bréf fyrr í vetur með tillögu að kostnaðarskiptingu, en hann hefur ekki brugðist við því.

2.         Reikningar félagsins
Haraldur Dungal gjaldkeri gerði grein fyrir ársreikningi félagsins, sem kjörnir skoðunarmenn reikninga höfðu endurskoðað. Hann var samþykktur.

3.         Kosning stjórnar
Þrír stjórnarmenn gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og í fundarboði var skorað á félagsmenn að gefa kost á sér til stjórnarsetu.
Þorvarður Kári Ólafsson var kjörinn formaður. Einnig voru kjörnir í stjórn Björn Gunnarsson, Haraldur Jónsson, Pétur Kristinsson og Sigmundur Andrésson, og í varastjórn þau Kristín Anna Stefánsdóttir og Ari Hauksson. Stjórnin skiptir nánar með sér verkum.

4.         Kosning skoðunarmanna
Hjalti Schiöth og Hildur Ingvarsdóttir voru kjörin skoðunarmenn ársreikninga og Aldís Norðfjörð til vara.

5.         Tillaga að lagabreytingu
Vegna breytinga á lögum um frístundabyggðir er nauðsynlegt að endurskoða lög félags bústaðaeigenda í Múlabyggð þannig að þau séu í samræmi við núgildandi landslög. Tillaga að nýjum lögum var rædd á síðasta aðalfundi (í nóvember 2009) og lögð fyrir þennan aðalfund með fundarboði. Samkvæmt eldri lögum félagsins þarf minnst helmingur félagsmanna að sækja fundinn til að gera lagabreytingu. Það skilyrði reyndist uppfyllt á þessum fundi og var lagabreytingin samþykkt einróma. Þar með starfar félag sumarhúsaeiganda Múlabyggðar eftir settum reglum.

6.         Félagsgjald
Samþykkt að gjaldið verði óbreytt, 5000 krónur.

7.         Önnur mál
Girðingamál og vegamál: Óskað var eftir að stjórnin tali við lögmann sumarhúsa um að knýja fram girðingarmálin og láta landeiganda standa skil á sínu, lögum samkvæmt. Fundarmenn lýstu óánægju sinni með að þurfa að borga fasteignagjöld og fá ekki einu sinni almennilegan veg, sbr. afsvar Borgarbyggðar þar að lútandi. Tekin var fyrir tillaga stjórnar um að setja 300 þúsund í að laga girðingar og ef um það semst við landeiganda að gera við vegina að bústöðum. Hún var samþykkt með 2 mótatkvæðum.

Vatnsmál: Fram kom fyrirspurn um hvort ekki fari að sjá fyrir endann á þeim vatnsmálum sem hafa brunnið á okkur í um 20 ár. Samþykkt var að stjórn knýi að öllum reglum þ.e að láta Umhverfisstofnun fylgja eftir vatnsveitumálunum.

Fram kom fyrirspurn um hvort hægt væri að hafa ruslagáma nær sumarhúsabyggðinni, en ekki fékkst svar við því á fundinum.

Fundi slitið 21:30

22 August 2011

Fundarboð - Aðalfundur félagsins 6. sept 2011

Aðalfundur Félags sumarhúsaeigenda í Múlabyggð verður haldinn þriðjudaginn 6. september næstkomandi, kl 20.00.

Fundarstaðurinn er að Stórhöfða 31, sal Rafiðnaðarsambandsins (gengið inn að neðanverðu við húsið)

Fundarefni er skv. lögum félagsins:
1.         Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins,
2.         Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar,
3.         Kosning formanns í samræmi við 6. gr.,
4.         Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. gr.,
5.         Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. gr.,
6.         Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns,
7.         Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár,
8.         Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv. 15. gr.
9.         Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra,
10.       Önnur mál

Undir lið 9 verður tekin fyrir tillaga stjórnar að umgengnisreglum, sem fylgir þessu fundarboði. 
Lögfræðingur Landssambands sumarhúsaeigenda mun einnig koma á fundinn til að ræða við okkur þau úrræði sem við höfum varðandi helstu baráttumál félagsins.

Frekari upplýsingar á heimasíðu félagsins: http://mulabyggd.blogspot.com/

Fyrir hönd stjórnar,
Þorvarður Kári Ólafsson formaður

Umgengnisreglur Múlabyggðar

Félag sumarhúsaeigenda í Múlabyggð - Umgengnisreglur
Tillaga stjórnar 18. ágúst 2011

1.    Almennt:
Sumarhúsaeigendur og gestir þeirra skulu gæta þess að ganga vel  um sumarhúsasvæðið í Múlabyggð. Íbúar og gestir þeirra skulu ekki skilja eftir rusl á víðavangi og ekki valda spjöllum á gróðri. Ennfremur skal forðast að valda öðrum íbúum ónæði með hávaða.

2.    Ljós og gróður:
Öll útilýsing skal höfð í lágmarki og útiljósum beint niður á við til að koma í veg fyrir ljósmengun. Kappkosta skal að halda vexti trjáa í því horfi að ekki skerði útsýni á sumarhúsasvæðinu. Bannað er að gróðursetja hávaxnar trjátegundir, svo sem aspir og greni.

3.    Akstur torfærutækja:
Akstur og umferð torfærutækja, s.s. fjórhjóla, sexhjóla og mótorkrosshjóla er bannaður  hvort heldur sem er utan vega eða á vegum sumarhúsasvæðisins.

4.    Notkun kalda vatnsins:
Sumarhúsaeigendur skulu gæta þess að kranar, lagnir og búnaður fyrir kalt neysluvatn sé ávallt í lagi frá stofnlögnum og að húsum þeirra. Vökvun lóða og gróðurs á lóðum og áfylling í heita potta er bönnuð á álagstímum, þar sem vatnsgeymar hvers svæðis tæmast fljótt við slíka vatnsnotkun. Gæta skal þess að vatnskranar og tengibúnaður við lóðamörk séu rétt meðhöndlaðir, þannig að veitukerfið tæmist ekki af þeim sökum. Sama gildir um hitaveitulagnir, komi hitaveita á svæðið.

5.    Þungaflutningar í hverfunum:
Verði lóðarhafi í Múlabyggð valdur að skemmdum á vegum í sumarhúsabyggðinni vegna þungaflutninga og/eða framkvæmda, þá skal hann bæta það tjón að fullu og sjá til þess á sinn kostnað, að vegirnir verði lagfærðir í sama horf og þeir voru fyrir tjónið.

6.    Meðferð elds :
Meðferð opins elds svo og meðferð flugelda er bönnuð á sumarhúsasvæðinu. Eld má einungis tendra í þar til gerðum útigrillum og útiarinstæðum og ávallt skal gæta fyllstu varkárni og öryggis við meðferð elds í slíkum búnaði.

7.    Dýrahald:
Lausaganga dýra, þ.m.t.  hunda, katta og annarra gæludýra er óheimil á sumarhúsasvæðinu. 

8.    Birting þessara reglna:
Reglur þessar skulu hanga á áberandi stað í hverjum bústað til leiðbeininga fyrir gesti.

21 April 2010

Stjórn félagsins 2010-2011

Þorvarður Kári Ólafsson, formaður (thorvardur@thjodskra.is)
Björn Gunnarsson(bjossi@post.com)
Haraldur Jónsson (hhj@mi.is)
Pétur Kristinsson (pkeignasysla@simnet.is)
Sigmundur Andrésson (sma@internet.is)

Kosin á aðalfundi félagsins 20.apríl 2010.

20 April 2010

Ný lög fyrir félag bústaðaeigenda í Múlabyggð, samþykkt á aðalfundi 20.apríl 2010

Samþykktir
fyrir félag bústaðaeigenda í Múlabyggð, Grímstöðum, Borgarbyggð

1. gr.
Heiti félags
Félagið heitir Félag bústaðaeigenda í Múlabyggð (skammstafað FBM).

Varnarþing þess er hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.

2. gr.
Stofnun félags
Félagið var stofnaði í mars 1993 og starfar í samræmi við 17. gr. laga nr. 75/2008, um frístundabyggð og leigu lóðar undir frístundahús Félagssvæðið er Múlabyggð Grímstöðum, 301 Borgarbyggð.
Félagið er aðili að Landssambandi sumarhúsaeigenda fyrir hönd félagsmanna sinna.

3. gr.
Félagsmenn
Félagsmenn eru allir þeir sem hafa umráð yfir lóð undir frístundahús á svæðinu. Sama gildir um umráðamenn lóða án húss.
Eigendaskipti skal tilkynna stjórn félagsins.

4. gr.
Hlutverk
Hlutverk félagsins er:
  1. Að gæta hagsmuna félagsmann.
  2. Að koma fram fyrir þeirra hönd gagvart leigusala.
  3. Að hlutast til um að umgengni og framkvæmdir á svæðinu valdi sem minnstri röskun.
  4. Að setja almennar samskipta- og umgengisreglur innan frístundabyggðarinnar.

5. gr.
Tilgangur
Tilgangur félagsins er að:
a) gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum vegna mála sem snerta lóðarhafa og frístundabyggðina,
b) vinna að hvers konar sameiginlegum hagsmunum félagsmanna á félagssvæðinu,
c) stuðla að og fylgjast með góðri umgengi og náttúruvernd á félagssvæðinu,
d) vinna að auknu öryggi á félagssvæðinu.

6. gr.
Skipun stjórnar

Stjórn félagsins skipa fimm (5) menn úr hópi félagsmanna sem kjörnir eru til eins árs í senn á aðalfundi. Formaður skal kjörinn sérstaklega en stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum þannig að einn sé ritari, einn gjaldkeri og aðrir meðstjórnendur. Einnig skal kjósa einn/tvo varamann/menn.
Boða skal varamann til stjórnarfundar þegar aðalmaður boðar forföll eða þegar stjórnarmaður óskar þess.

7. gr.
Aðalfundur
Aðalfund skal halda árlega fyrir 1. júní. Fer hann með æðsta vald í málefnum félagsins.
Aðalfund skal stjórnin boða bréflega til tilgreindra umráðamanna frístundalóða með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Boða má fund með tölvubréfi á það póstfang sem forráðamaður hefur látið stjórninni í té og telst það fullnægjandi svo fremi að ekki komi boð um það til sendanda að tölvubréfið hafi ekki komist til skila. Í fundarboði skal greina fundartíma, fundarstað og dagskrá. Þá skal geta þeirra mála sem ræða á og samantekt á efni þeirra tillagna sem leggja á fyrir fundinn.
Fundurinn telst lögmætur ef minnst þriðjungur félagsmanna sækir fundinn. Ef tilskilinn fjöldi félagsmanna mætir ekki á löglega boðaðan fund skal hann endurtekinn eftir skriflega boðun, með að lágmarki viku fyrirvara, og telst hann þá lögmætur með þeim fjölda félagsmanna, sem mæta seinna skiptið.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
  1. skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins,
  2. staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar,
  3. kosning formanns í samræmi við 6. gr.,
  4. kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. gr.,
  5. kosning varamanns/manna í samræmi við 6. gr.,
  6. kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns,
  7. framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár,
  8. ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv. 15. gr.
  9. mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra,
  10. önnur mál
Hafi stjórn ekki boðað til aðalfundar 1. október er þeim félagsmönnum sem vilja halda fund heimilt að boða hann í samræmi við 1. mgr. og kjósa nýja stjórn sem telst réttkjörin í stað fyrri stjórnar.

8. gr.
Atkvæði
Eitt atkvæði fylgir hverri lóð undir frístundahús og fer tilgreindur umráðamaður með atkvæðisréttin. Afl atkvæða ræður úrslitum mála annarra en þeirra sem fjallað er um í 11. gr. og 19. gr.

9. gr.
Skipting kostnaðar og lögveð
Kostnaður skiptist að jöfnu og ræðst af fjölda lóða undir frístundahús á félagssvæðinu. Umráðamanni lóðar undir frístundahús er skylt að greiða sinn hluta kostnaðar sem hlýst af ákvörðun sem löglega hefur verið tekin.
Greiði félagsmaður ekki hlutdeild sína í sameiginlegum kostnaði og í félagssjóð á gjalddaga eignast félagið lögveð í eign hans á félagssvæðinu, þ.m.t. í leigulóðasamningi, til tryggingar kröfunni. Lögveðið nær einnig til vaxta og innheimtukostnaðar af kröfunni ef því er að skipta. Lögveðinu skal fylgja eftir með lögsókn eða því lýst við nauðungasölu innan árs frá stofnun þess. Viðurkenning eigenda utan réttar nægir ekki til að rjúfa fyrningu.

10. gr.
Fundarseta
Rétt til fundarsetu hafa félagsmenn, makar þeirra og sambúðaraðilar. Sambúðaraðili í skilningi samþykkta þessara er einstaklingur sem er í skráðri sambúð með leigutaka eða umráðamanni lóðar undir frístundahús, í frístundabyggð.
Félagsmaður má veita sérhverjum lögráða manni umboð til að mæta á fundi og greiða atkvæði. Skal umboðsmaður leggja fram á fundinum skriflegt og dagsett umboð. Slíkt umboð má hvenær sem er afturkalla.
Þegar tveir eða fleiri eru eigendur eða leigjendur að lóð skulu þeir tilkynna stjórn félagsins hver skuli teljast umráðmaður hennar samkvæmt samþykktum þessum og fer með atkvæðisrétt, fær fundarboð og kröfu um greiðslu gjalda til félagsins.

11. gr.
Sérstakar ákvarðanir
Ef lögð er fram tillaga á fundi félagsins samkvæmt auglýstri dagskrá í fundarboði um að ráðast í framkvæmdir eða stofna til kostnaðar sem leiða til útgjalda sem eru umfram venjulegan rekstrarkostnað félagsins skal sú tillaga talin samþykkt hljóti hún samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða og minnst þriðjungur félagsmanna sækir fundinn.

12. gr.
Valdsvið stjórnar
Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda. Stjórnin getur boðað til félagsfunda eins oft og þurfa þykir. Til funda skal boða bréflega með tveggja vikna fyrirvara á sama hátt og aðalfund.
Skylt er að boða til félagsfundar ef fjórðungur félagsmanna krefst þess skriflega
Stjórnin getur ekki bundið félagsmenn fjárhagslega.

13. gr.
Gerðarbók
Stjórn félagsins skal halda gerðarbók yfir bæði stjórnarfundi og félagsfundi
Í fundargerðarbók skal skrá yfirlit yfir allt það sem gerðist á félagsfundi og ákvarðanir hans. Fundargerðin skal undirrituð af ritara fundar og fundarstjóra. Fundargerðin er síðan full sönnun þess sem fram hefur farið á fundinum. Sama gildir með fundi stjórnarinnar.
Á fundum félagsins skulu allir félagsaðilar eða umboðsmenn þeirra sem sitja fundinn skrá nafn sitt í fundargerðabók eða fundarsóknarbók og fyrir hvaða lóð eða bústað þeir sitja fundinn.
Fundargerð hvers félagsfundar svo og samþykktan ársreikning og félagaskrá skal senda umráðamanni lóðar innan þriggja (3) vikna frá fundi á tölvupóstfang sem þeir láta stjórn félagsins í té. Aðrir félagsmenn (geta óskað eftir því að) fá gögnin send í pósti.
(Ath. ef félagið heldur úti heimasíðu eða gefur út fréttablað ætti að orða seinni mgr. í samræmi við það.)
14. gr.
Nefndarskipun
Stjórninni er heimilt að skipa nefndir til sérstakra verkefna ef henni þykir ástæða til.

15. gr.
Gjalddagi
Gjalddagi árgjalds skv. 6. gr. skal vera 1 mars og eindagi 15 dögum síðar. Gjalddagi framkvæmdagjalds sem ákvarðað er skv. 11. gr. skal vera tilgreint við samþykkt þess.

16. gr.
Reikningsárið
Reikningsár félagsins er almanaksárið.

17. gr.
Slit félagsins
Ef ekki er lengur tilgangur fyrir tilvist félagsins má slíta því með einföldum meirihluta og ákveður fundurinn ráðstöfun eigna sem félagið kann að eiga. Boða skal þá sérstaklega til fundarins vegna tillagna um niðurlagningu félagsins.


18. gr.
Þinglýsing samþykkta
Stjórn félagsins skal hlutast til um það að samþykktum þessum verði þinglýst á allar fasteignir og lóðasamninga og lóðir sem tilheyra félagssvæðinu svo og breytingum sem kunna að verða gerðar á samþykktum þessum.

19. gr.
Breytingar á samþykktum þessum
Breytingar á samþykktum þessum verða aðeins gerðar á aðalfundi. Tillaga um breytingu verður einungis tekin til afgreiðslu að hún hafi verið kynnt í aðalfundarboði og hljóti samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða og minnst helmingur félagsmanna sæki fundinn.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Skýringar og athugasemdir
við drög að samræmdum samþykktum fyrir félög sem stofnuð eru í samræmi við lög nr. 75/2008, um frístundabyggð og leigu lóðar undir frístundahús eða stofnuð voru fyrir gildistöku þeirra laga en hyggja á endurskráningu sem slíkt félag hjá Fyrirtækjaskrá.

Í 2. mgr. 18. gr. laganna þar sem fjallað er um stofnfund félagsins segir að setja skuli því samþykktir sem hafi að geyma tiltekin atriði sem nánar eru talin upp í lagagreininni. Er því valið að nota það orð hér, þ.e. „samþykktir félags“ í stað þess að nota orðið „lög félagsins“.
Í 3. mgr. 17. gr. laganna segir að hafi verið stofnað félag í frístundabyggð fyrir gildistöku laganna skulu samþykktir þess halda gildi sínu að því leyti sem þær samrýmast lögunum.

Með framsetningu þessara samþykkta er verið að gera tillögu til samræmingar á tilteknum ákvæðum sem annað hvort er skylt að hafa í samþykktum eða æskilegt að þær séu þar. Félögin eru margvísleg og hagsmunir og tilgangur þeirra mismunandi, yfirleitt um rekstur og viðhald vatnsveitu, girðingar og/eða vega. Verður því hvert og eitt félag að ákveða hvernig þeim þáttum er skipað í samþykktunum sínum. Tekin eru upp ákvæði sem eru í lögunum því telja verður að ákvæðin verði aðgengilegri félagsmönnum í samþykktunum heldur en í lögunum.

Í 1. gr. kemur fram heiti félagsins og varnarþing. Skv. 2. tölul. 2. mgr. 18. gr. skal koma fram heimilisfang félagsins og varnarþing. Varnarþing skal vera tilgreint í sveitarfélagi viðkomandi svæðis og/eða tilgreindum héraðsdómi sem hentugra þykir. Póstfang félags er eða getur verið breytilegt eftir því sem stjórnarmenn ákveða hverju sinni. Æskilegt er að það sé formlega tilkynnt Fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra sem heldur skrá um upplýsingar um heimilisföng og póstfang og stjórnarmenn félaga og félagasamtaka sem hafa kennitölu. Einnig þurfa félög sem eru aðilar að Landssambandi sumarhúsaeigenda að gefa þangað þessar upplýsingar árlega.

Í 2. gr. er stofnun og starfræksla félagsins tengt ákvæðum í lögum um frístundabyggð beint. Lagt verður til að frístundafélög skrái sig að nýju hjá Fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra sem „félag í frístundabyggða“. Núverandi skráning frístundafélaga eða sumarhúsafélaga eins og þau voru almennt kölluð eru mjög margbreytileg frá einu félagi til annars á liðnum árum við úthlutun kennitalna til þeirra. Þá þarf að tilgreina og skilgreina félagssvæðið skv. 3. tölul. 2. mgr. 18. gr. en þar segir að ákvæði um „félagssvæði og skulu taldar upp allar lóðir í viðkomandi frístundabyggð“. Skv. 3. mgr. 18. gr. skal „stjórn félags hlutast til um að samþykktum félagsins verði þinglýst á allar þær fasteignir sem taldar eru upp í samþykktum þess“ og er það ákvæði tekið upp í 18. gr. þessara samþykkta.
Þá er lagt til að í samþykktunum komi fram að félagið sé aðili að Landssambandi sumarhúsaeigenda, en að sjálfsögðu er það sjálfstæð ákvörðun hvers og eins félags. Hver og einn handhafi lóðar í frístundabyggð getur gerst félagi í LS.

Í 3. gr. er skilgreint hverjir séu félagsmenn.

Í 4. gr. er tekið fram hvert sé hlutverk félagsins og er það í samræmi við 19. gr. laganna. Fyrst og fremst er það um sameiginleg verkefni eins og rekstur og viðhald sameiginlegra eigna. Fellt er niður í þessum drögum ákvæði um lagningu vegar og gerð sameiginlegrar girðingar þar sem það er yfirleitt framkvæmt við skipulag svæðisins.
Athygli er vakin á því að nú hafa félögin lögbundinn rétt skv. 6. tölul. 19. gr. laganna til þess að setja almennar samskipta- og umgengisreglur innan frístundabyggðarinnar rétt eins og húsfélög hafa innan sinna híbýla. Lagt er til að slíkar samskipta- og umgengisreglur séu samdar og settar sérstaklega en ekki blandað saman við samþykktir félagsins. Eru því engar tillögur þar að lútandi settar fram hér.

Í 5. gr. er greint frá tilgangi félagsins að því leyti sem hann er frábrugðinn hlutverki félagsins. Hér geta verið um að ræða ákvæði um sameiginlegar samkomur, útgáfu fréttablaðs o.fl.

Í 6. gr. eru ákvæði um skipun stjórnar en fjöldi stjórnarmanna er ekki lögbundinn að öðru leyti en því að kjósa skuli formann, aðra stjórnarmenn og varamenn. Fjöldi stjórnarmanna er ákvörðun hvers félags og eins kjörtímabil hvers og eins. Því eru settir upp tveir valmöguleikar.

Í 7. gr. eru ákvæði um aðalfund og byggjast á 20. gr. laganna. Lagt er til að boða eigi til aðalfundar og annarra félagsfunda bréflega eins og segir í lögum en á grundvelli skýringa með frumvarpinu er varð að lögum megi túlka það svo að fullnægjandi sé að boða til fundar með tölvubréfi enda er það orðið svo algeng samskiptaleið. Þó er tekið fram að sendandi verði að fullvissa sig um að pósturinn hafi komist til skila og umráðamaður lóða hafi látið stjórninni í té póstfangið. Um lögmæti fundar kemur ekki fram í 20. gr. laganna en af ákvörðum um fundarsókn í tilgreinum málum má ætla að félögin geti sjálf tekið það fram í samþykktum sínum um það atriði.
Skv. 1. mgr. 20. gr. laganna hafa félagsmenn heimild til að boða til aðalfundar hafi stjórn þess ekki gert það fyrir 1. október og getur slíkur fundur tekið yfir valdsvið fyrri stjórnar. Er litið á þetta ákvæði sem varúðarákvæði til að ekki verði fundarfall á árinu og kemur vonandi aldrei að til þess þurfi að grípa. Lagt er til að taka ákvæðið engu að síður inn í samþykktirnar.

Í 8. gr. kemur fram að eitt atkvæði fylgir hverri lóð sem reisa má á frístundahús og er það í samræmi við 1. mgr. 21. gr. laganna.

Í 9. gr. kemur fram að ákvæði 2. mgr. 21. gr. laganna að kostnaður skiptist jafnt án tillits til stærðar lóðar enda sé einungis heimilt að reisa eitt frístundahús. Umráðamanni er skylt að greiða sinn hluta kostnaðar sem lögleg ákvörðun hefur verið tekin. Þá eru tekin upp ákvæði í 3.-.5. mgr. 21. gr. um þau úrræði sem stjórn félags getur tekið ef ekki er orðið við kröfu um greiðslu gjalda til félagsins, þ.e. lögveð í eigninni á sama hátt og húsfélög geta gert gagnvart íbúðareigendum fjöleignarhúsa. Umráðamaður lóðar sem ekki er leigð út eða er óseld er landeigandi. Sama gildir um fjármálastofnun sem hefur leyst til sín lóðina.

Í 10. gr. eru ákvæði um rétt til fundarsetu í samræmi við 1. og 2. mgr. 22. gr. laganna.

Í 11. gr. eru ákvæði um þátttöku í atkvæðagreiðslu þegar lagt er til að stofna til sérstaks kostnaðar umfram venjubundinn rekstrarkostnað. Er það í samræmi við 4. mgr. 22. gr. laganna.

Í 12. gr. er um valdsvið stjórnarinnar og rétt félagsmanna til að boðað sé til félagsfundar.

Í 13. gr. eru ákvæði um fundargerðabók og fundarsóknarbók. Lagt er til að allir fundarmenn félagsfundar skrái sig til að sannprófa megi fundarsókn og hverjir hafa sótt fundinn. Enn fremur er lagt til að fundargerð sé undirrituð af fundarstjóra og fundarritara í stað þess að hún sé lesin upp í lok fundar sem yfirleitt gefst ekki tími til eða í upphafi næsta fundar sem er haldinn ári síðar. Í stað þess er lagt til að fundargerð og samþykktur ársreikningur og félagaskrá verði send öllum þeim sem hafa gefið stjórninni tölvupóstfang sitt en öðrum sent þessar upplýsingar í pósti að ósk hvers og eins eða öllum umráðamönnum án tillits til hvernig sent er. Þau félög sem halda úti heimasíðu á netinu eða gefa út fréttablöð til félagsmanna sinna geta orðað þessa málsgrein í samræmi við það.

Í 14. gr. er stjórn heimilað að skipa nefndir til sérstakra verkefna fyrir félagið.

Í 15. gr. er kveðið á um gjalddaga greiðslu

Í 16. gr. er ákvæði um reikningsárið. Enda þótt almanaksárið sé algengast þar sem aðalfundir eru almennt á fyrri hluta árs þá er lagt til að félög sem halda aðalfundi sem á að vera í síðasta lagi 1. september, skv. 1. mgr. 20. gr. laganna, geti ákvarðað lok reikningsárs nær þeim degi.

Í 17. gr. fjallað um hvernig skuli fara með slit á félaginu og ráðstafanir eigna sem kunna að vera til.

Í 18. gr. eru ákvæði 3. mgr. 18. gr. laganna um þinglýsingu samþykkta þess á allar þær fasteignir, þ.m.t. lóðir sem taldar eru til félagssvæðisins og breytinga á þeim.

Í 19. gr. eru ákvæði um breytingu á samþykktum félagsins og eru þau í samræmi við 5. mgr. 22. gr. laganna.

Ákvæði til bráðabirgða.
Þegar valin er kostur B í 6. gr. um stjórnarkjör við stofnun félags verður að greina á milli þeirra sem sitja skuli næstu tvö árin og hinna sem ganga skulu úr stjórn á næsta ári eftir stofnun þannig að ákvæðið virki eins til er ætlast. Sama gildir ef breyta eigi kjöri stjórnar úr kosti A í kost B.

29 March 2010

Fundarboð - Aðalfundur félagsins 20. apríl 2010

Aðalfundur Félags Bústaðaeiganda í Múlabyggð (FBM), verður haldinn þriðjudaginn 20. apríl næstkomandi, kl 20.00.
Fundarstaðurinn er að Stórhöfða 31, gengið inn að neðanverðu. Þegar inn er komið er tekin lyfta upp á 4. hæð.

Fundarefni:

  1. Venjuleg aðlfundarstörf.
  2. Lagabreytingar.
  3. Önnur mál.

Vegna breytinga á lögum um frístundabyggðir er nauðsynlegt að endurskoða lög félags bústaðaeigenda í Múlabyggð þannig að þau séu í samræmi við núgildandi landslög.
Tillaga að nýjum lögum er á heimasíðu félagsins, sjá: http://mulabyggd.blogspot.com/2009/11/tillaga-nyjum-logum-fyrir-felag.html

Til að breyta lögum þarf minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða og minnst helmingur félagsmanna þarf að sækja fundinn. Það er því mikilvægt að sem flestir mæti eða sendi fulltrúa sinn (t.d. annan félagsmann) með skriflegt umboð til atkvæðagreiðslu fyrir sína hönd.

Einnig er vakin athygli á að a.m.k 3 stjórnarmenn gefa ekki kost á sér til endurkjörs, því hér með skorað á félagsmenn að gefa kost á sér til stjórnarsetu.

Frekari upplýsingar á heimasíðu félagsins: http://mulabyggd.blogspot.com/

Fyrir hönd stjórnar,

Snorri Árnason formaður

Vegamál á svæðinu

Formaður FBM sendi fyrirspurn um viðhald vegarins neðan við Múlabyggð til Jökuls Helgasonar forstöðumanns framkvæmdasviðs Borgarbyggðar eftir síðasta aðalfund félagsins.

Svarið frá Jökli er hér:
"Skv. þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér ber sveitarfélaginu ekki skylda til að sinna viðhaldi á umræddum vegi. Hinsvegar getur sveitarfélagið sótt um fjárveitingu til Vegagerðarinnar til að sinna viðhaldi svokallaðra styrkvega í sveitarfélaginu. Stefnt er að því að sækja um fjárveitingu til Vegagerðarinnar fyrir umræddan veg fyrir árið 2010, en úthlutun Vegagerðarinnar fer að öllum líkindum fram næsta vor. Hvort eða hver sú fjárveiting verður mun ráða úrslitum um hvað hægt verður að gera fyrir veginn á komandi sumri, en leiða má líkum að því að fjármagnið dugi til heflunar og mögulega ofaníburð á þeim stöðum þar sem mest er þörf fyrir.
Kv. Jökull H."