04 March 2014

Tillaga stjórnar að lagabreytingu á framhaldsaðalfundi 2013 (18.mars 2014) ÚRELT

I. 4.grein laganna fjallar um hlutverk félagsins. Lagt er til að síðasti liður hennar (sem í eldri lögum fjallar um samskipta- og umgengnisreglur) hljóði svo:
            4. Að taka ákvarðanir um verkefni samkvæmt 19.gr. laga um frístundabyggð.

II. Lagt er til að 5.grein laganna (sem í eldri lögum fjallar um tilgang félagsins) hljóði svo:
5.gr Sameiginlegar veitur
Ákveði aðalfundur að reka sameiginlega aðveitu eða fráveitu skulu gerðar skriflegar samþykktir um þann rekstur og honum haldið aðskildum frá almennum rekstri félagsins.


Rök fyrir lagabreytingunum:
Megintilgangur þessara breytinga er að í lögunum sé skýr heimild til þess að félagið megi reka vatnsveitu og sjá um viðhald vega og girðinga. Til að raska ekki númerum lagagreina eru tekin út óþarfa ákvæði, sem eru innifalin í öðrum ákvæðum og lögum um frístundabyggð.



Stjórn félagsins

No comments:

Post a Comment