17 March 2014

Samningur undirritaður 17.mars (úreltur)

Ágætu félagsmenn,
í dag undirritaði Guðni meðfylgjandi samning um yfirtöku félagsins á rekstri
vatnsveitu, vega og girðinga. Samkvæmt honum lækkar lóðarleiga um 27.500, en í
óstaðfestu samkomulagi frá í júní 2013 var sú upphæð 22.500 og í þeim drögum
sem send voru með framhaldsaðalfundarboði var hún 40.000 krónur. Jafnframt
skuldbindur landeigandi sig til að gera nýja samsvarandi lóðarleigusamninga í
stað þeirra sem renna út 2010-2015. 

Samningurinn verður borinn upp til staðfestingar á framhaldsaðalfundi annað
kvöld og eru allir félagsmenn eindregið hvattir til að mæta.

Með kveðju,
formaður



No comments:

Post a Comment