04 June 2013

Aðalfundarboð 2013



Fundarboð - Aðalfundur félagsins 18. júní 2013

Aðalfundur Félags sumarhúsaeigenda í Múlabyggð verður haldinn þriðjudaginn 18. júní næstkomandi, kl 20.00.

Fundarstaðurinn er að Stórhöfða 31, sal Rafiðnaðarsambandsins (gengið inn að neðanverðu við húsið)

Fundarefni er skv. lögum félagsins:
1.         Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins,
2.         Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar,
3.         Kosning formanns í samræmi við 6. gr.,
4.         Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. gr.,
5.         Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. gr.,
6.         Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns,
7.         Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár,
8.         Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv. 15. gr.
9.         Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra,
10.       Önnur mál

Óskað er eftir að fleiri gefi kost á sér í stjórn.

Undir lið 7 verður, í framhaldi af árangurslausum samningaviðræðum við landeiganda (sjá viðhengi), tekin fyrir tillaga stjórnar um fjárútlát vegna lögfræðiaðstoðar og neyðarúrræða til að takast á við yfirvofandi vatnsskort.

Undir lið 10 verður farið yfir lagalega stöðu lóðarhafa þegar samningar eru að renna út, sjá greinargerð í viðhengi.

Mikilvægt er að félagsmenn kynni sér meðfylgjandi gögn vel og fjölmenni á fundinn því um stór mál er að ræða.

Frekari upplýsingar eru í viðhengjum og á heimasíðu félagsins: http://mulabyggd.blogspot.com/

Fyrir hönd stjórnar,
Þorvarður Kári Ólafsson formaður

No comments:

Post a Comment