Fundarboð - Aðalfundur félagsins 29. maí 2012
Aðalfundur Félags sumarhúsaeigenda í
Múlabyggð verður haldinn þriðjudaginn 29. maí næstkomandi, kl
20.00.
Fundarstaðurinn er að Stórhöfða
31, sal Rafiðnaðarsambandsins (gengið inn að neðanverðu við
húsið)
Fundarefni er skv. lögum félagsins:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins,
2. Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár
lagður fram til umræðu og samþykktar,
3. Kosning formanns í samræmi við 6. gr.,
4. Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. gr.,
5. Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. gr.,
6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns,
7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár,
8. Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu
viðhaldi og rekstri skv. 15. gr.
9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra,
10. Önnur mál
Engin mál eru til
afgreiðslu undir lið 9, en undir lið 10 verða kynntar
ráðleggingar til félagsmanna varðandi framlengingu leigusamninga.
Frekari upplýsingar á heimasíðu
félagsins: http://mulabyggd.blogspot.com/
Fyrir hönd stjórnar,
Þorvarður Kári Ólafsson formaður
No comments:
Post a Comment