16 November 2026

Aðalfundargerð 2026

 Aðalfundur Félags sumarbústaðaeigenda í Múlabyggð 9. nóv. 2026 kl 20:00

Fundargerð.

Mættir voru: 24 félagsmenn auk stjórnar.

Fundarstjóri Þorvarður, fundarritari Valdís B. Guðjónsdóttir

1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins. 

Stefán Árni fór yfir störf stjórnar s.l. ár.

​Vegirnir innan svæðisins eru orðnir mjög lélegir og gróður kominn á milli hjólfara. Halli á Háhóli er byrjaður að bera ofaní í einni innkeyrslu/götu. 


​Byrjað er að vinna í að reisa geymsluskúr fyrir kurlarann. Fundinn hefur verið staður við innkeyrsluna á lóð nr. 2, lóð sem Guðni á. Efni í grunninn er komið á staðinn.


​Vegamál. Um er að ræða svo kallaðan héraðsveg sem Vegagerðinni ber að sjá um. Ef hlið er sett á veginn þá er Vegagerðinni ekki skylt að sinna veginum. Hliðið við Grenjar er búið að vera þarna í um 30 ár. Þá er spurning hvort þeir sleppi að sinna veginum alveg frá Grímsstaða-afleggjaranum eða við hliðið. Umræða spannst um skemmdir á dekkjum o.fl.


​Guðni á Grímsstöðum hafði samband við formann vegna skipulagningar á nýrri byggð fyrir neðan veg, um 20 lóðir. Stefán Árni hafði samband við Borgarbyggð og fékk að vita að ekki hefur verið sótt um neitt. Guðni hafði áhuga á að vita hvort nýja byggðin gæti fengið aðgengi að vatnsbólinu okkar. Stefán leggur til að ekki verði orðið við því. Ekki er tímabært að gera neitt í þessu núna og leggur til að þetta verði efni fyrir næsta aðalfund og þá verði samin ályktun. 


​Varðandi brunavarnir þá hafði Stefán samband við Slökkvilið Borgarbyggðar og munu þeir koma og skoða svæðið m.t.t. brunavarna. 


2. Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar. Gjaldkeri var fjarverandi og skoðunarmaður reikninga fór yfir ársreikninginn, sem var samþykktur einróma.


3. Kosning formanns. Stefán Árni bauðst til að vera áfram og var það samþykkt.


4. Kosning annarra stjórnarmanna. Snæbjörn býðst til að vera áfram gjaldkeri og Birgir áfam ritari, Magnea og Einar buðust til að starfa áfram í meðstjórn. Það var samþykkt.


5. Kosning varamanns/varamanna. Pétur og Valdís buðust til að vera áfram varamenn. Var það samþykkt.


6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga. Þorvarður og Lilja verða áfram.


7. Rekstrar- og framkvæmdaáætlun fyrir næsta ár lögð fram. Engin breyting frá fyrra ári. Enginn kostnaður vegna vatnsveitu, snjómokstur var lítill, kannski mokað tvisvar sinnum. Bent á að hafa samband við Birgi vegna snjómoksturs. Viðhald gatna, byrjað hefur verið að bera ofan í götur. Kostnaður þar að lútandi skiptist milli gatna og grunns f. kurlarahús. Ekki var farið í girðingavinnu. Áætlunin var samþykkt. 


8. Ákvörðun um árgjald félagsins. Árgjaldið verður óbreytt.


9.  10. Önnur mál. 

• Umræða varðandi feisbókarsíðuna. Þar þarf að taka til, henda út fólki sem tengjast ekki félaginu eða bústöðunum. Einnig þarf að uppfæra póstlista/netföng. 
• ​Girðingavinna. Stungið var upp á að myndaður yrði hópur. Umræða um hverjum ber að sjá um girðingarnar, sveitarfélaginu, Guðna vegna skógræktar eða félaginu. Stungið upp á að við göngum bara í þetta þar sem girðingarnar eru sums staðar ryðgaðar í sundur. Lagt til að farið verði í að kanna þörfina fyrir viðgerðir og athuga með kostnað. Einnig þarf að athuga hvort hægt sé að fá girðingarstyrk. Spyrjast fyrir um það hjá Landsambandi sumarhúsaeigenda. Einnig var rætt um þörf fyrir fjárhelda girðingu.
• Heimasíðan. Hún er að verða úrelt. Lagt til að búa til nýja, jafnvel kaupa lén. Lilja er til í að vinna í þessu. Það þarf að varðveita þau gögn sem eru á núverandi síðu.
• Sorpgámar. Staðsetningin ekki góð og umgengni léleg. Komnir eru flokkunargámar, pappír og plast.
• Umræða um stofnkostnað við tengingu við vatnsveitu. Vísað var í samning sem gerður var og er að finna á heimasíðunni. Bent á að það þurfa að vera til peningar í vatnsveitusjóði til að takast á við kostnað sem gæti komið upp. Lilja sagði að alltaf hefði verið erfitt að bora fyrir vatni í þessari sveit.

 

Fundi slitið kl 21:50