25 October 2026

Aðalfundarboði 2026

Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð 

Aðalfundarboð 2026

 

Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð verður haldinn Mánudag 9 nóvember næstkomandi, kl 20.00 við Sléttuveg 29, 103 Reykjavík.



Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:


1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og um vatnsveituna. 

 

2. Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar. Nær einnig yfir vatnsveitudeild, en rekstur hennar er sýndur sérstaklega í reikningunum.

 

3. Kosning formanns í samræmi við 6. Gr.

 

4. Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. Gr.

 

5. Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. Gr. 

 

6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns.  

 

7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár. Einnig fyrir vatnsveituna.


8. Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv.15. gr. Einnig ákvörðun vatnsveitugjalds skv. samþykktum vatnsveitudeildar.


9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra: 


a) Áhaldaskúr fyrir kurlara félagsins


b) Viðhald á sameiginlegum vegum 


10. Önnur mál


Vinsamlegast athugið að fundurinn er jafnframt aðalfundur vatnsveitudeildar félagsins. Málefni vatnsveitu deildar verða tekin fyrir undir viðeigandi liðum á dagskránni í samræmi við samþykktir deildarinnar.



Kær kveðja,

Formaður stjórnar

Stefán Árni Þorgeirsson

No comments:

Post a Comment