24 April 2017

Aðalfundarboð 2017

Fundarboð - Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð 9. maí 2017

Aðalfundur Félags sumarhúsaeigenda í Múlabyggð verður haldinn þriðjudaginn 9. maí næstkomandi, kl 20.00.

Fundarstaðurinn er í safnaðarheimili Bústaðakirkju, gengið inn að sunnanverðu.

Fundurinn hefst á pylsukynningu og eldvarnafræðslu.

Að því loknu hefst dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins og um vatnsveituna.

2. Staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar. Nær einnig yfir vatnsveitudeild, en rekstur hennar er sýndur sérstaklega í reikningunum.

3. Kosning formanns í samræmi við 6. gr.

4. Kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. gr.

5. Kosning varamanns/manna í samræmi við 6. gr.

6. Kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns.

7. Framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár. Einnig fyrir vatnsveituna.

8. Ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv. 15. gr. Einnig ákvörðun vatnsveitugjalds skv. samþykktum vatnsveitudeildar.

9. Mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra: Sjá meðfylgjandi Drög að ályktun um lúpínu.

10. Önnur mál.

Vinsamlegast athugið að fundurinn er jafnframt aðalfundur vatnveitudeildar félagsins. Málefni vatnsveitudeildar verða tekin fyrir undir viðeigandi liðum á dagskránni í samræmi við samþykktir deildarinnar.

Nánar á vef félagsins http://mulabyggd.blogspot.com

Stjórnin

P.s: Drög að ályktun um lúpínu
Aðalfundur Félags bústaðaeigenda í Múlabyggð ályktar að lúpína sé ekki velkomin í sumarhúsabyggðinni. Stjórn félagsins er falið að beita viðurkenndum aðferðum til að útrýma lúpínu af sameiginlegum svæðum. Einnig eru lóðarhafar hvattir til að gera slíkt hið sama á sínum lóðum.

No comments:

Post a Comment